Skjálfti að stærðinni 3,9 varð á átta kílómetra dýpi um 4,5 kílómetra suðsuðaustur af Hveragerði. Skjálftinn varð klukkan 13:10 og hafa tilkynningar meðal annars borist frá Selfossi, Hveragerði og höfuðborgarsvæðinu. Þá hafa nokkrir eftirskjálftar mælst.