Íbúar í Breiðholti urðu margir hverjir varir við eldingu og háværa þrumu í kjölfarið í hádeginu í dag. „Sá alla Vatnsendahæð lýsast upp í nánast 2 sekúndur. Svaka læti,“ segir einn í Facebook-hópi íbúa í Breiðholti. Fleiri taka undir og segjast hafa séð og heyrt í veðrinu.
Éljagangur hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í dag og skyggni á köflum verið afar lítið. Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu – eins og víðar um landið reyndar.
Í veðurviðvörun Veðurstofunnar segir að búast megi við 15 til 23 metrum á sekúndu í dag með éljagangi. „Búast má við takmörkuðu eða lélegu skyggni í éljum, versnandi akstursskilyrðum og samgöngutruflunum, einkum í efribyggðum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.“