fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Lögmaður telur miklar líkur á að ferðamennirnir á Langjökli eigi rétt á miskabótum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 8. janúar 2020 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að sögn Helga Þorsteinssonar, sem er lögmaður hjá Norðdahl og Valdimarsson auk þess að vera leiðsögumaður og sitja í stjórn Félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi, AIMG, eru töluverðar líkur á því að ferðamennirnir sem voru á Langjökli á vegum fyrirtækisins Mountaineers of Iceland, eigi tilkall til miskabóta frá fyrirtækinu.

„Ég hef auðvitað aðeins séð það sem hefur komið fram í fjölmiðlum en miðað við þá atvikalýsingu sem hefur birst þar er líklegt að fólkið sem lenti í þessum hremmingum á Langjökli eigi rétt á miskabótum,“ segir Helgi, en hann telur miskabótaréttinn standa og falla með því hvort hægt sé að sýna fram á það fyrir dómi að þeir sem stóðu að baki ferðinni hafi sýnt af sér gáleysi og hvort að farþegarnir hafi orðið fyrir tjóni vegna þessa.

„Ef við skoðum dóm í máli áströlsku hjónanna sem er um margt sambærilegt mál, fáum við nokkra hugmynd. Þar var fallist á 300.000 króna miskabætur handa hvoru þeirra ásamt fjártjóni sem fólst í útlögðum kostnaði vegna heimsókna til lækna og sálfræðinga. Þannig fæst þessi 700.000 króna tala sem oft er vísað til.“

Í niðurstöðu héraðsdóms í málinu sem Helgi vísar hér til sagði meðal annars:

„Við mat á gáleysi starfsmanna stefndu verður ekki dregin fjöður yfir það að stefndi hefur um árabil selt erlendum ferðamönnum skipulagðar ferðir um hálendi Íslands. Þá liggur einnig fyrir að starfsmenn stefnda sem fóru með stefnendum í þessa ferð höfðu áralanga reynslu af leiðsögn og handleiðslu ferðamanna í slíkum ferðum. Mátti þeim því vera fulljóst hvaða hætta stefnendum gat verið búin miðað við þær aðstæður sem uppi voru í málinu. Að mati dómsins var gáleysi þeirra að þessu leyti verulegt.“

Erfitt að leggja mat á mögulegar bætur

Helgi telur að ýmsir óvissuþættir standi í veginum fyrir því að hægt sé á skjóta á bótafjárhæð til hvers og eins ferðamanns sem var í ferðinni örlagaríku á Langjökli:

„Það er mjög erfitt að segja til um það hverjar bætur yrðu í þessu máli, enda yrði krafa um slíkt að koma fram eftir að læknisfræðilegra gagna hefði verið aflað o.s.frv. En það er ljóst að í þessu tilviki er um talsvert marga ferðamenn að ræða og því gæti heildarfjárhæðin orðið mun stærri en í máli áströlsku hjónanna, svo ekki sé nú talað um málskostnaðinn. Varðandi hvar ábyrgðin liggur þá er nokkuð ljóst á dómafordæminu sem fyrir liggur að tekið er mið af reynsluleysi farþeganna og þá sérstaklega þegar börn eru annars vegar, ráðrúm ferðaþjónustuaðila til að bregðast við veðurspá og hvaða leiðbeiningar og viðvaranir farþegar fengu við upphaf ferðar. Í þessu sambandi er rétt að benda á að einhliða yfirlýsingar um að farþegar skuldbindi sig til að kynna sér leiðbeiningar og öryggisreglur virðast hafa litla þýðingu, heldur er litið til þeirra leiðbeininga sem farþegar fá í reynd. Svona mál geta auðvitað snúist um „áhættutöku og samþykki“ en miðað við þann aðstöðumun sem er greinilegur þá er meginábyrgðin að öllum líkindum hjá ferðaþjónustuaðilanum nema alveg sérstaklega standi á. Þessi aðstöðumunur er þannig að annars vegar er ferðaþjónustuaðili með margra ára reynslu í hálendisferðum (sjá t.d. á heimasíðu umrædds fyrirtækis sem hefur starfað frá 1996 og auglýsir það til að byggja upp traust) og hins vegar ferðamaður sem oft hefur litla eða enga reynslu af þessum veðurskilyrðum og oftar en ekki enga reynslu af ferðamátanum sem er í þessu tilviki vélsleði. Þessi ferðamaður leggur allt sitt traust á ferðaþjónustuaðilann sem selur sína sérþekkingu á svæði og aðstæðum. Það er auðvitað ekki hægt að segja fyllilega til um þetta öðruvísi en að bera málið undir dómstóla en miðað við fréttaflutninginn af málinu þá virðast atvik og aðstæður vera með þeim hætti að dómstólar myndu fallast á gáleysi þeirra sem stóðu að ferðinni og það myndi síðan leiða til bótaskyldu.

Það sem mælir með bótaskyldu er auðvitað það að ef að þú kaupir þjónustu af ferðaþjónustuaðila þá gerir þú það í krafti þeirrar sannfæringar að sá aðili hafi öryggi þitt í fyrirrúmi fyrst og fremst, að sá aðili sé vel undirbúinn og taki allar ákvarðanir af varúð. Þessi skýri aðstöðumunur aðila er svo auðvitað þáttur sem hefur áhrif. Það sést nokkuð vel á fréttaflutningi þar sem fram kemur að a.m.k. einn farþegi sagðist ekki hafa haft hugmynd um að óveður væri í vændum.

Það sem mælir auðvitað gegn slíkri ábyrgð eru þessi sjónarmið um samþykki og áhættutöku. Það er þau sjónarmið að sá sem kaupir sér ævintýraferðir og leiðsögn á fjöll, viti það að það sé ómögulegt að útiloka alla hættu. Það er alltaf viss hætta fólgin í fjallaferðum og ævintýraferðamennsku og besta varúðarráðstöfunin er auðvitað sú að fara ekki í slíka ferð, en ef kosið er að stunda útivist þá verðum við að takmarka hættuna eftir fremsta megni upp að því marki sem sanngjarnt getur talist. Til leiðbeiningar um hvar þau mörk liggja eru t.d. stormviðvaranir og ýmsir aðrir þættir sem ferðaþjónustuaðilar meta dag hvern.

Þegar við drögum þessa línu þá sýnist sitt hverjum en í öllu falli munu dómstólar hafa lokaorðið. Svo er reyndar alls ekki útilokað að svona atburðir leiði til lagabreytinga. Ísland er að verða vinsælli áfangastaður og það hlýtur að vera að hluta til á ábyrgð leiðandi ferðaþjónustuaðila að móta að nokkru leyti þá stefnu sem er tekin í þessum málum og ef þeir fara út af sporinu þá er dómskerfið til staðar til að leiðrétta það.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

45 gráðu frost í Reykjavík? – Það gæti orðið raunveruleikinn

45 gráðu frost í Reykjavík? – Það gæti orðið raunveruleikinn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“