Skiptastjórar þrotabús WOW hafa sent tilkynningu til héraðssaksóknara þess efnis að möguleg lögbrot hafi verið framin með skuldabréfaútboði WOW air haustið 2018. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Í skuldabréfaútboðinu söfnuðust um 50 milljónir evra eða tæplega sjö milljarðar íslenskra króna. Stór hluti af fénu var notaður til að greiða upp skuldir við aðila sem voru sjálfir þátttakendur í skuldabréfaútboðinu. Enn fremur mun WOW sjálft hafa tekið þátt í útboðinu og Skúli Mogensen, forstjóri félagsins, keypti 10% af skuldabréfunum.