Starfsfólki Valitor fækkar á öllum starfsstöðvum fyrirtækisins í kjölfar samþykktar stjórnarfundar Valitor í síðustu viku um endurskipulagningu á félagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor. Þar segir að í þeim aðgerðum sem nú er ráðist í fækki starfsfólki um nálægt 60 manns. Þá er gripið til almennra hagræðingaraðgerða til að treysta reksturinn.
Stjórn Valitor samþykkti þann 30. desember síðastliðinn að hefjast handa við endurskipulagningu á félaginu til að styrkja kjarnastarfsemi þess og snúa við taprekstri.
„Með þeim aðgerðum sem nú er ráðist i fækkar starfsfólki félagsins um nálægt 60, úr nærri 390 starfsmönnum í um 330. Þar með eru taldar stöður sem hafa losnað hjá félaginu og ekki er ráðið í að nýju. Breytingarnar taka til allra starfsstöðva fyrirtækisins. Alls er um að ræða 9 uppsagnir á Íslandi og hafa þær þegar tekið gildi,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að aðrar mannabreytingar varði starfsstöðvar Valitor í Danmörku og Bretlandi.
„Á ofanverðu síðasta ári var starfsfólki Valitor fækkað um nærri 30 manns. Þannig nemur fækkun síðustu 6 mánuðina næstum 90 starfsmönnum. Samhliða mannaflabreytingum er hagrætt víða á öðrum sviðum starfseminnar, m.a. er verið að endursemja við birgja, draga saman í húsnæði og fækka vörum í þróun. Valitor er í söluferli þar sem fyrirhugað er að selja félagið í heild eða að hluta.“
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, segir í tilkynningunni: „Markmiðið er skýrt, við ætlum að snúa við taprekstri og tryggja félaginu sterkan rekstrargrundvöll til framtíðar. Það er aldrei góður tími til að segja upp starfsfólki og sjá á bak hæfum samstarfsmönnum. Hins vegar leggjum við áherslu á að hefja nýtt ár með gjörbreyttum rekstrarforsendum. Með þessum aðgerðum ætlum við okkur að fara úr tapi yfir í rekstrarhagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði (e. EBITDA). Við erum að styrkja og þétta rekstur og kjarnaþjónustu félagsins á okkar mörkuðum og þar lítum við ekki síst til mikilvægis heimamarkaðsins þar sem við stöndum traustum fótum. Eftir róttækar og erfiðar breytingar horfum við bjartari augum fram á veg og munum sækja fram á ný. Þar vil ég sérstaklega benda á sóknarfæri varðandi samvinnu við öflug erlend fjártæknifyrirtæki á borð við Stripe, Klarna og Paymentsense þar sem samstarfslíkan okkar hefur sannað gildi sitt.“
Tilkynning Valitor endar á þessum orðum:
„Með framangreindum skipulagsbreytingum mun draga úr fjárfestingarþörf og rekstrarkostnaði sem aftur hefur jákvæð áhrif á afkomu félagsins. Valitor verður eftir sem áður fjárhagslega sterkt, alþjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki sem býður fjölbreytta þjónustu á sviði færsluhirðingar, greiðslugátta og útgáfu.“