fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Matthildur nefnir lausn við eitruðu karlmennskunni – „Karlmenn um aldir hafa bullað fyrir eigin hag“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 6. janúar 2020 13:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Sverrisson, fyrrverandi yfirsálfræðingur geðdeildar á Akureyri, skrifaði pistil um eitraða karlmennsku sem birtist á Vísi fyrir áramót. „Karlar hafa löngum þótt eitraðir, óduglegir og jafnvel réttdræpir, sökum ofbeldis og kúgunar gagnvart konum sínum. Þær voru greinilega haldnir eitraðri karlmennsku eins og ég og kynbræður mínir í dag, því þessi bölvaldur er okkur í blóð borinn, hefur síast inn í merg og bein,“ er meðal þess sem Arnar segir en hann vill meina að karlmenn hafi verið kúgaðir af konum í gegnum árin.

Matthildur Björnsdóttir pistlahöfundur hefur nú svarað skrifum Arnars. „Það var hreinlega sorglegt að lesa grein Arnars Sverrissonar,“ segir Matthildur í pistlinum sínum en í honum veltir hún því fyrir sér hvers vegna karlmenn verða „eitraðir“.

„Eftir það voru karlmenn og þarfir þeirra mikilvægari en barna hennar“

Matthildur segir það almennt ekki gerast að drengir fæðist slæmir vegna þess að þeir eru karlkyns. „Samfélögin hafa sett þá í þær kringumstæður,“ segir Matthildur en hún telur að það hafi gerst vegna karlrembu þeirra sem skipulögðu trúarbrögðin. „Af því að þeir vildu vera yfir, sem og hinna karlanna. Stundum fylgdi og fylgir kvenkyn enn þeim viðhorfum, af því að þær töldu og telja sig verða að vera frekar í liðinu með körlum, en börnum og öðrum konum. Þær virðast telja það einu leiðina til að hafa öryggi.“

„Ég þekkti konu sem var fædd 1925 sem var mun meira á hlið karlkyns en sinni eigin,“ segir Matthildur en hún segir konuna ekki hafa haft meiri jafnréttistilfinningu en það að vilja sinn rétt með laun og vinnu. „Eftir það voru karlmenn og þarfir þeirra mikilvægari en barna hennar.“ Þá segir Matthildur að þetta hafi verið algeng viðhorf á árum áður.

„Þetta með karlkyn, og kvartanir þeirra sem eiga erfitt með að þola jafnrétti, sé ég allt vera meira og minna á reikning trúarbragða skipulögð af karlkyni. Karlmenn sem um aldir hafa bullað fyrir eigin hag. Og það í stað þess að sjá allt mannkyn með sína mismunandi eiginleika og hæfileika til að leggja heiminum til í þjónustu, vilja þeir sjá konuna sem mun lægri á skala mannkyns. Og það er því miður í verki víða í heiminum, enn þann dag í dag.“

„Þrá ekkert meira en að taka allt jafnrétti af konum“

Matthildur segist hafa haft góðan slatta af karlmönnum í kringum sig sem hafa ekki virkað sem þeir væru eitraðir. „En margir samt mjög tilfinningalega vanþróaðir, af því að þannig var heilaþvottur trúarbragða og samfélagsins um hvernig þeir ættu að vera,“ segir hún. „Auðvitað á þetta um tilfinningalegan vanþroska líka við um konur sem einnig var oft skipað að fela tár og fengu enga uppbyggilega leiðbeiningu um tilfinningar. Okkur var ætlað að hafa fæðst með allt svo fullkomið, sem er ekki veruleikinn.“

Hún segir „endur-heilavíranir“ til að bæta viðhorf taka tíma en að það gerist ekki nema þegar við ákveðum að bætinga er þörf. „Það eru enn karlmenn við stjórn í hinum vestræna heimi sem þrá ekkert meira en að taka allt jafnrétti af konum, sem þegar hefur náðst. Og vilja halda konum í keðjum án réttinda,“ segir hún og nefnir umræðuna um þungunarrof í Bandaríkjunum sem dæmi. „Svo að hvaða taug eða þörf sem það er í karlkyni að sjá sig eiga að hafa rétt á að hafa þessa algeru stjórn, er enn í gangi, og er baneitruð.“

Hlutirnir hafa breyst

Matthildur hefur ekki trú á því að karlremba muni líða undir lok í náinni framtíð. „Sem betur fer eru samt æ meiri breytingar að gerast í karlkyni á síðari áratugum, sem er mjög yndislegt að vitna,“ segir hún og nefnir sem dæmi þær byltingar sem hafa átt sér stað undanfarin ár. Hún kemur síðan með dæmi um það hvernig stuðlað hefur verið að meiri tilfinningaþroska hjá karlmönnum. Þeir taka nú á móti börnum sínum við fæðingu, ólíkt því sem tíðkaðist á fyrri hluta síðustu aldar, og í dag telst ekkert furðulegt eða óalgengt við það að sjá karlmenn ýta barnavögnum.

Eitrið

„Svo hvað er eitrið sem Arnar talar um, og hvers vegna er það til?“ spyr Matthildur. „Það eru auðvitað til of margar skilgreiningar og ástæður fyrir því sem Arnar kallar “Eitrið” en það væri til dæmis slæmur persónuleiki, þroskaleysi, of mikið af karlhormónum á flugi um heilann, svo það sem menn segja sjálfum sér um sitt eigið mikilvægi, og það sem þeir hafa verið heilaþvegnir til að trúa um kyn sitt.“

Hún segir að það þurfi að hafa það í huga að margra alda veldi karlmanna endar ekki bara sí svona, með ljúfum samræðum við samningaborðið. „Og allra síst ef karlar eru enn á því viðhorfi að þeir eigi að ráða öllu um aldur og æfi.“

Móteitrið

En hvernig er hægt að koma þessu svokallaða eitri í burt? Margrét telur að það sé hægt og nefnir ýmsa hluti sem gætu virkað sem eins konar móteitur. „Með góðum samræðum og fræðslu um þessi atriði í mannlegu eðli frá barnæsku og áfram, um hina ótal fleti lífsins, ætti þetta eitur að geta minnkað,“ segir hún og nefnir baráttur eins og #MeToo og #HeForShe sem góða liði í baráttunni gegn eitrinu.

„Það er auðvitað hlutverk allra foreldra að senda góða einstaklinga af öllum kynjum út í heiminn, ef hægt er. Og vonandi eiga einhverjar framtíðar kynslóðir eftir að geta lifað án þess eiturs sem hér er rætt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald