Um klukkan 9 í morgun greindi RÚV frá því að búið væri að loka Hellisheiði og Þrengslum vegna veðurs og ófærðar. Áður var búið að loka vegum um Mosfellsheiði, Lyngdalsheiði og Fróðárheiði. Þá var stórhríð á Reykjanesbrautinni og mjög slæmt skyggni.
Um 10 leytið var greint frá því að rúta hafði farið út af veginum á Kjalarnesi. Í rútunni voru 14 farþegar en samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni urðu engin slys á fólki. Farþegar rútunnar voru þó fluttir á fjöldahjálparstöð á Kjalarnesi. Vísir greindi frá þessu en veginum var í kjölfarið lokað vegna veðurs og á meðan unnið er á vettvangi. Upp úr 11 greindi RÚV síðan frá því að búið væri að loka Hvalfjarðargöngunum í kjölfar lokunarinnar á Kjalarnesvegi.
Á hádegi í dag var Reykjanesbrautinni síðan lokað en einnig var ákveðið að loka vegum um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. RÚV greindi frá því að björgunarsveitir landsins hafi kallað eftir meiri mannskap á hádegi svo hægt væri að glíma við óveðurstengd verkefni.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði í samtali við RÚV að flest útköllin væru á Suðurnesjum en verkefnin þar eru komin á annan tug. Þá segir að eitthvað hafi verið um fok á byggingarefni og þakklæðningum en einnig eru ökumenn í vanda sem þarfnast aðstoðar.
„Eftir hádegi mun úrkoma snúast úr snjó yfir í rigningu. Mun þá vaxa í ám og lækjum og ágætt er að huga að niðurföllum til þess að tryggja að vatn eigi greiða leið þar um,“ sagði Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur í fréttum Bylgjunnar fyrr í dag.
„Vindur er vaxandi og kominn leiðinda skafrenningur og hálka á vegum hérna fyrir sunnan og við Faxaflóa. Það bætir í vind og veðrið nær hámarki undir hádegi,“ hélt Þorsteinn áfram en hann segir að veður geti orðið hvað verst við Reynisfjall, Eyjafjöll, Hafnarfjall og á Kjalarnesi.
„Einnig verður hvasst við norðanvert Snæfellsnesið í dag. Veðrið færist svo smám saman yfir allt landið en er verst við suður- og vesturströndina,“ segir hann en hann bættir við að bálhvasst verði á norður- og austurlandi seinna í dag. Mun veðrið ganga yfir þar með snjókomu eða slyddu. Hann bætir við að gera megi ráð fyrir því að það taki allan daginn fyrir veðrið að ganga yfir landið.
Veðrið nær hámarki á suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu nú undir hádegið, en Þorsteinn segir að bálhvasst verði á norður- og austurlandi seinna í dag og gengur þar yfir með snjókomu eða slyddu. „Það má segja að það verði óveður fram á kvöld,“