Það vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar Stefan, sem er aðeins 21 árs gamall, steig fram opinberlega sem fyrsta klámstjarna Íslands. Kemur hann fram undir sviðsnafninu Charlie Keller en upphaflega var ætlun hans að halda starfinu leyndu, að minnsta kosti fyrst um sinn. Fiskisagan flýgur hins vegar hratt hér á Íslandi og þegar Stefan komst á snoðir um að íslenskur fjölmiðill ætlaði að fjalla um starfsvettvang hans sá hann sig knúinn til þess að láta ástvini sína vita og opna umræðuna.
Nú er Stefan hins vegar hættur í kláminu. Hann vinnur nú í fylgdarþjónustu en hann ræddi við mbl.is um starfið. „Það er háttset fólk hjá bandaríska ríkinu sem kaupir þjónustu af mér. Þú getur farið út að borða, þú getur farið í ferðalag með einhverjum. Þetta er rosa oft einmana fólk sem á allt of mikið af peningum. Stundum hitti ég gifta einstaklinga sem eru í feluleik en komast ekki út úr skápnum vegna ótta,“ sagði Stefan.
Í viðtalinu segir Stefan frá sinni heitustu ástríðu um þessar mundir en það er heimildarmynd um fíkniefnaneyslu sem hann er að vinna að. Með myndinni vill Stefan sína að fíkniefnaneysla sé ekki bara tengd klámiðnaðinum heldur sé að finna hana í öðrum kimum samfélagsins, meðal annars á Alþingi.
„Ég var að vinna á veitingastað niðri í bæ fyrir nokkrum árum og þangað kom margt stjórnmálafólk og bankafólk í mat. Þetta lið er að taka í nefið á sér. Ég er ekki að segja að allir geri þetta,“ segir Stefan í viðtalinu en hann staðhæfir að fólk á Alþingi séu ekkert betri borgarar en fólk í klámheiminum.
Stefan kynntist manni sem varð kveikjan að þessari heimildarmynd. „Það var 72 ára maður sem sat fyrir framan mig og sagði mér að hann hefði byrjað í neyslu fyrir sex árum. Í fyrsta skipti sem hann notaði sprautaði hann sig. Hann á konu, börn og barnabörn en hann er hommi. Hann er háttsettur fjárfestir í Nevada-ríki. Ég fylgdist með honum lengi. Ég get ekki dæmt fólk, ég hef verið umdeildur, af hverju ætti ég að fara dæma einhverja aðra? Ég hef ekki efni á að dæma fólk. Ég lærði það eftir sambandsslitin hjá mér að mér er sama hvað annað fólk er að gera svo lengi sem það er ekki að skaða hvert annað.“
Stefan segist vera búinn að rannsaka lífið hjá þeim sem eru í neyslu en næsta skrefið í gerð heimildarmyndarinnar er að tala við sérfræðinga og aðstandendur fíkla.