fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Ögmundur: „Þetta þarf að verða mál málanna á árinu“ – Þarna hófst útrásin

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. janúar 2020 15:30

Ögmundur Jónasson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þarna hófst útrásin, þarna var byrjað að blása út bóluhagkerfið sem síðan sprakk í andlit þjóðarinnar,“ segir Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Þar skrifar Ögmundur um kvótakerfið og nauðsyn þess að taka kerfið til gagngerrar endurskoðunar. „ Nú þarf að ná kvótanum til baka. Við þurfum að gera Ísland heilt á ný,“ segir hann meðal annars í grein sinni.

Afdrifaríkt skref

Ögmundur rifjar upp að þegar kvótakerfinu var komið á í sjávarútvegi hafi skýringin verið sú að vernda þyrfti sjávarauðlindina. Stýra þyrfti veiðum með úthlutun aflaheimilda svo sókn í sjávarauðlindina yrði ekki meiri en svo að fiskistofnar þyldu veiðarnar.

„Þetta var árið 1983. Næsta skrefið sem var stigið, og átti það eftir að reynast afdrifaríkt, var þegar aflaheimildir voru gerðar framseljanlegar. Skýringin var sögð sú að þannig mætti stuðla að hagkvæmum rekstri í sjávarútvegi, hinir burðugu tækju yfir hina veikari og eftir stæðu öflugri fyrirtæki en ella,“ segir hann og bætir við að þetta hafi átt að gagnast sjávarbyggðum og efnahagslífi landsmanna almennt.

„Þetta var árið 1990. Þegar farið var að veðsetja fiskiskip á grundvelli aflaheimilda þeirra (óveidds kvóta) var það látið viðgangast þrátt fyrir landslög sem sögðu skýrt að sjávarauðlindin væri í eigu þjóðarinnar,“ segir Ögmundur sem vísar í fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða. Þar segir: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar.“

Nýtt í þágu einkahagsmuna

Ögmundur bendir svo á að veðsetning á kvóta hafi færst jafnt og þétt í aukana í aðdraganda hrunsins og verið þar eflaust orsök. Pólitískir handlangarar kerfisins hafi leyft því að gerast að sameign þjóðarinnar væri fénýtt í þágu einkahagsmuna.

Ögmundur segir að afleiðingar þessara kerfisbreytinga hafi verið gríðarlegar. „Þær hafa skekið þjóðfélagið og valdið illvígari deilum en nokkurt annað málefni. Um það er þó ekki deilt, nefnilega að fátt, ef þá nokkuð, hafi valdið eins djúpstæðum ágreiningi í íslensku samfélagi og kvótakerfið og þá ekki síst framsalið og veðsetning kvótans.“

Ögmundur nefnir að kvótakerfið hafi haft í för með sér gríðarlega byggðaröskun og þá hafi meint samlegð leitt til samþjöppunar og einokunar á kostnað lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Kenning um öflugri fyrirtæki og öflugri sjávarútvegs hafi reynst verri í framkvæmd en menn ætluðu og verið samfélaginu dýrkeypt þegar upp var staðið.

Þarna hófst útrásin

„Í þriðja lagi hefur auður (að hluta til uppdiktaður, byggður á væntingum) verið fluttur upp á land og til útlanda í rekstur og fjárfestingar sem engu skilaði til baka til raunverulegra eigenda í íslenskum sjávarbyggðum. Þarna hófst útrásin, þarna var byrjað að blása út bóluhagkerfið sem síðan sprakk í andlit þjóðarinnar. Svo vorum það við sem vildum frekar Bogesen en Radcliffe; við sem sögðum að þrátt fyrir allt væri betra að hafa eignarhaldið í návígi. Bogesen þekkti þó allavega hana Sölku Völku og sína heimabyggð enda sýndi reynslan að hann skilaði arðinum þar, innan þúsund metra radíuss, á meðan umgjörð kauphallanna í London og New York umlykur veröldina alla. Í þeim höllum er öllum nákvæmlega sama um barnaskólann á Flateyri.“

Ögmundur endar grein sína á þessum orðum:

„Nú þarf að rétta af þessa skekkju sem kvótakerfið innleiddi með framsali sínu og veðsetningu bjögun byggðanna og misskiptingu auðæfanna. Nú þarf að ná kvótanum til baka. Við þurfum að gera Ísland heilt á ný. Það gerum við með því að ná kvótanum út úr heimi braskaranna, þannig að lögin um eignarhald þjóðarinnar á nytjastofnum á Íslandsmiðum verði ekki bara orðin tóm. Þetta þarf að verða mál málanna á nýbyrjuðu ári.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar