fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Braut Saga Ýrr trúnaðarskyldu eða ekki? Þetta er álit hæstaréttarlögmanns

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 3. janúar 2020 15:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson minnir á 45. grein laga um meðferð sakamála í tengslum við umfjöllum um mál réttargæslumannsins Sögu Ýrar sem lögregla sakar um að hafa brotið þagnarskyldu með upplýsingagjöf til fjölmiðla um mál háskólalektorsins Kristjáns Gunnars Valdimarssonar sem er grunaður um fíkniefnaneyslu og kynferðisbrot.

Saga Ýrr viðraði gagnrýni á vinnubrögð lögreglu við fjölmiðla og aðilar innan lögreglunnar telja hana þar með hafa brotið þagnarskyldu. Þessu harðneitar Saga Ýrr í tilkynningu sem hún sendi frá sér í gær og rifjum upp hér neðar.

Sveinn Andri skrifar á Facebook-síðu sína:

Samkvæmt 45. gr. laga um meðferð sakamála er það hlutverk réttargæzlumanns að gæta hagsmuna brotaþola í sakamálum og veita honum aðstoð í máli, þar á meðal við að setja fram einkaréttarkröfur.

Þagnarskylda hvílir á réttargæzlumanni skv. 3. mgr. ákvæðisins um það sem brotaþoli trúir honum fyrir og um önnur þau atriði sem hann hefur komist að í starfa sínum og ekki eru þegar kunn.

– Brotaþoli er ekki aðili að sakamáli. Hafi hann uppi einkaréttarkröfu nýtur hann þó, að því er þann þátt málsins varðar, sömu réttarstöðu og aðili að einkamáli. Þar sem brotaþoli er ekki aðili að sakamáli er vandséð að gagnrýni á störf lögreglu varðandi „verklag og vinnubrögð“ í tengslum handtöku sakbornings falli undir það að gæta hagsmuna brotaþola. Fái réttargæzlumaður í tengslum við störf sín vitneskju um hin meintu gagnrýnisverðu vinnubrögð lögreglu og þau eru þá ekki þegar kunn, þá er um brot á þagnarskyldu að ræða.

Erfitt er að ráð af þessu hvort Sveinn Andri telji Sögu Ýrr hafa brotið þagnarskyldu. DV hafði samband við hann vegna málsins og sagðist hann ekki dæma um það. Hans innlegg væri almenns eðlis og sett fram með fyrirvörum: „Ég er ekki í nokkur stöðu til að meta það. Kommentið er almenns eðlis, með fyrirvörum.“

Saga Ýrr sagði í yfirlýsingu sinni um málið í gær:

Ég hef sinnt störfum mínum af heilindum og með hagsmuni umbjóðanda míns að leiðarljósi. Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum gagnrýndi ég tiltekna þætti í verklagi lögreglu en með þeirri gagnrýni minni braut ég hvorki þagnarskyldu né starfsskyldur mínar að öðru leyti. Ég stend föst á því að þessi gagnrýni átti fullan rétt á sér enda vakti ég máls á því í fjölmiðlum að verklag og vinnubrögð lögreglu í aðdraganda handtöku hins grunaða væri mögulega ábótavant og þarfnaðist nánari skoðunar. Jafnframt tók ég fram að vel hafði verið staðið að rannsókn málsins að öðru leyti. Eftir stendur að gagnrýni undirritaðrar á störf og verklag lögreglu í málinu er enn ósvarað.

Hvorki lögreglan né önnur opinber yfirvöld eru hafin yfir gagnrýni á störf sín og er það réttur minn, sem og annarra þegna landsins, að setja fram gagnrýni með það fyrir augum að auka gagnsæi og aðhald til að unnt sé að gera úrbætur á störfum og þjónustu á þeim sviðum sem þörf er. Ef rétt reynist að viðbrögð lögreglunnar hafi verið á þann veg að vilja fá mig leysta undan störfum mínum sem réttargæslumaður, vegna gagnrýni á verklag og vinnubrögð lögregluembættisins, þá dæma slík viðbrögð sig sjálf að mínu mati. Ég er ekki, frekar en lögreglan, hafin yfir gagnrýni en veit að ekkert tilefni er til að leysa mig undan störfum og tel að þetta útspil lögreglunnar, að reyna gera störf mín tortryggileg í fjölmiðlum, sé léleg tilraun til að beina kastljósi fjölmiðla frá vinnu embættisins sjálfs í málinu. Fórnarlömb ofbeldis eiga skilið að hafa sterka málsvara sem standa með þeim af fullum krafti og þora að gagnrýna störf þeirra sem eiga að vernda þau, sé tilefni til. Það hef ég gert í þessu máli og mun gera áfram ef þörf krefur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar