Maðurinn sem saknað er í Heydal á Snæfellsnesi heitir Andris Kalvans og er 57 ára gamall Lithái sem búsettur er í Reykjavík. Andris er mikið fyrir fjallgöngur og er talið að hann hafi gengið upp á Hrútatind. Er leit björgunarsveita hagað í samræmi við það.
Talið er að Andris hafi ekið að heiman frá sér þann 28. desember. Bíll hans fannst yfirgefinn í Heydal.
Meðfylgjandi eru myndir frá leit björgunarsveita á Vesturlandi.