Alvarleg líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum að morgni nýársdags þegar einstaklingur var stunginn með hnífi.
Þetta kemur fram á fréttavefnum Local Suðurnes.
Þar segir að árásin hafi átt sér stað snemma að morgni nýársdags og var fórnarlambið flutt á sjúkrahús og grunaður gerandi handtekinn. Frekari upplýsingar um líðan þess sem varð fyrir árásinni liggja ekki fyrir, en í frétt Local Suðurnes kemur fram að rannsókn málsins miði vel.