Hlynur Már Vilhjálmsson, varaborgarfulltrúi og atvinnuleitandi, var refsað af Vinnumálastofnun (VMST) fyrir að neita að sitja námskeið á vegum stofnunarinnar þar sem viðhöfð var neikvæð umræða í garð hælisleitenda. Honum var gert að sæta því að missa bótaréttinn sinn um tiltekinn tíma, en það hafði í för með sér að Hlynur þurfti annað hvort að leita eftir fjárhagsaðstoð frá borginni ellegar átt á hættu að missa heimili sitt. Hann gagnrýnir VMST fyrir ófagleg vinnubrögð og Reykjavíkurborg fyrir úrræðaleysi þeirra sem lenda í þeirri stöðu að vera sviptir tekjum sínum.
Áður hefur DV greint frá því þegar Hlynur Már rauk af námskeiði VMST eftir að námskeiðshaldara fór að gagnrýna mótmæli hælisleitenda. Það kom honum því mikið á óvart þegar námskeiðshaldari opnaði í annað sinn á neikvæðar umræður í garð innflytjenda.
„Ég er búinn að fara á þrjú námskeið hjá Vinnumálastofnun og það er búinn að vera í raun beinn rasismi námskeiðshaldara á tveimur þeirra og á því þriðja, sem var Excel námskeið, tókst námskeiðshaldaranum að blanda innflytjendaspurningu inn í umræðuna.
Námskeiðið sjálft var auðvitað ekki rasískt en framkoma námskeiðshaldaranna mætti skilgreina þannig. Fyrir utan að slík umræða kemur atvinnuleitanda ekki við og því eru þetta ófagleg vinnubrögð.
Að mínu mati þegar umræða á námskeiði fer út í þessa sálma þá hafa námskeiðshaldarar sér engar málsbætur. Umræða og fókus námskeiðshaldara á námskeiði hlýtur að eiga að vera á það að hjálpa til við að fá vinnu.“
Á þriðja námskeiðinu upphófust þó ekki sömu neikvæðu umræðurnar og á hinum námskeiðunum svo Hlynur Már ákvað að sitja námskeiðið áfram og kláraði það með fullkomna mætingu.
VMST hafði svo samband við Hlyn og óskaði eftir skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki setið hin tvö námskeiðin til enda og greindi Hlynur þeim frá þeim umræðum sem áttu sér þar stað, umræðum sem hann gat með engu móti umborið. Staða innflytjenda og hælisleitenda á Íslandi er Hlyni afar hugleikin. Hann stóð vaktina á Austurvelli með innflytjendum í vetur þar sem þeir mótmæltu slæmri aðstöðu þeirra
„Ég var meðal þeirra sem stóðu vaktina með innflytjendum á Austurvelli í vetur þegar þeir mótmæltu illri meðferð á sér með því að gista úti í frostinu á Austurvelli í heila viku.“
Það er því ekki að furða að Hlynur hafi neitað að sitja námskeið þar sem umræðurnar stríða gegn siðferðis- og réttlætiskennd hans. En VMST gaf lítið fyrir skýringar hans og svipti hann bótarétti í refsingarskyni.
„Afleiðingar þess að missa bótaréttinn eru margþættar. Ég þarf að sækja um fjárhagsaðstoð hjá borginni til að fá einhverjar tekjur um mánaðamótin. Fjárhagsaðstoðin er skert um helming til að byrja með því ég er á biðtíma hjá VMST og síðan er hún aftur skert um 52 þúsund krónur vegna þess að þessar 210 þúsund krónur sem ég fékk útborgað frá VMST síðustu mánaðamót, eru langt yfir mörkum borgarinnar í þessu.“
„Þrátt fyrir að tekjurnar verði þetta litlar og dugi kannski og kannski bara fyrir húsaleigunni minni, en þá að sjálfsögðu ekki fyrir öðrum reikningum og mat, þá get ég ekki líklegast ekki fengið aukalega lán frá borginni fyrir fjárhagsaðstoð sem dugar fyrir þessum nauðsynjum.“
„Ég þarf að áfrýja skerðingu vegna tekna síðasta mánaðar frá VMST til áfrýjunarnefndar velferðarsviðs og þá er ég að vonast eftir því að Velferðarsviðið sé mannúðlegra en Vinnumálastofnun en það fer þá eftir því hverjir stjórna þar.“
Hlynur Már er varaborgarfulltrúi, en fær þó aðeins greitt fyrir þá fundi borgarstjórnar sem hann er boðaður til að mæta á. Hingað til hefur það gerst einu sinni og því ekki um auðugan garð að gresja þar. Hann er einnig mikill baráttumaður fyrir réttindum fósturbarna og berst fyrir umbótum á kerfi barnaverndar. Hann skrifaði meðal annars pistil sem birtist hjá Stundinni á dögunum þar sem hann greindi frá rannsókn sinni á hatursfullri orðræðu íhaldssamra þjóðernissinna gegn fjölmenningu, umræða sem færist í aukanna á Íslandi og í Evrópu.
„Ég stofnaði Félag fósturbarna og funda með Félagsmálaráðuneytinu og Barnavernd Reykjavíkur reglulega á vegum félagsins um betrumbætur á barnaverndarkerfinu. Sem stendur er enginn samningur fyrir hendi um það samstarf hvorki við ríkið né Reykjavíkurborg og þess vegna er það ógreitt starf. Það liggur fyrir að sækja um styrk frá Reykjavíkurborg í haust vegna starfsemi félagsins.“
„En núna er staðan sú að ekki er víst hvort fjárhagsaðstoðin dugi til að ég haldi húsnæðinu mínu. Ég gagnrýni borgaryfirvöld fyrir að bjóða ekki upp á betri úrræði fyrir fólk sem lendir í vandræðum með að ná tekjum sem duga fyrir nauðsynjum, mat, húsnæði og heilbrigðisþjónustu, því ekki fer maður t.d. til tannlæknis eða sálfræðings þann mánuð sem ekki nást endar saman fyrir mat og húsnæði.“
„Ég finn til með félagsráðgjöfum borgarinnar að þurfa að starfa eftir þessu ómannúðlega kerfi eins og það er í dag en þeir félagsráðgjafar sem ég hef talað við í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð hafa allt viljað fyrir mig gera. Borgarstjórn er hins vegar að búa til neyð fyrir fólk með tilheyrandi sársauka og það er óafsakanlegt.“
Að atvinnuleitendur þurfi að sitja undir fordómafullri umræðu til að halda bótarétti finnst Hlyni ólíðandi. Hann ætlar að áfrýja ákvörðun Vinnumálastofnunar og segir að það verði að færa þjóðfélagsumræðuna til betri vegar.
„Og við verðum að færa umræðuna í þjóðfélaginu á það stig að ekki sé hægt að vega gegn minnihlutahópum með jafn auðveldum hætti og námskeiðshaldarar VMST sumir telja sig hafa rétt á.“
Hlynur greindi frá samskiptum sínum við VMST á Facebook síðu sinni þar sem Freyja Haraldsdóttir, þroskaþjálfi og baráttukona fyrir réttindum fatlaðra, lýsti yfir furðu sinni á þessari framkomu í athugasemd.
„Manneskja leitar eftir aðstoð hjá vinnumálastofnun. Manneskja sækir þar námskeið þar sem hún ítrekað upplifir og situr undir umræðu sem er bæði ófagleg og siðlaus. Manneskjan setur eðlileg mörk: gengur út og kvartar. Kvörtunin er ekki tekin gild. Manneskjan er hins vegar svipt atvinnuleysisbótum í tvo mánuði. Þið vitið, lífsviðurværi. Sem sagt: ríkisstofnun vill frekar nota vald sitt til þess að níðast á skjólstæðingum sínum heldur en að hætta að vera rasísk.
Þetta dæmi minnir mig á skrif Söru Ahmed, feminískrar fræðikonu á sviði heimspeki og félags- og kynjafræði, um kvartanir í tengslum við kynferðisofbeldi innan háskóla. Hún segir m.a.:
If you complain about harassment you are harassed.
Harassment is a means by which a complaint about harassment is stopped.
Those who are not stopped from complaining are often harassed all the more.“
Hlynur Már rauk út af námskeiði Vinnumálastofnunar: „Viðurstyggileg staða“