fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Katrín var alein um jólin: „Ég er ein flest önnur kvöld ársins og spáir held ég enginn sérstaklega í það“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. desember 2019 12:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Björgvinsdóttir skrifar pistil á vefnum Lifðu núna sem hefur vakið talsverða athygli. Þar greinir hún frá því hvernig henni þyki best að vera ein um jólin. Hún segir að jólin hafi verið rólegri í gamla daga því hafi hún ákveðið að taka til þessa ráðs.

„Jólin hafa hvílt frekar þungt á mér undanfarin ár og hef ég spurt mig hvers vegna? Þegar við héldum jól á mínu heimili hér áður fyrr voru þau róleg, góð og einhvernveginn svo notaleg – við tókum góðan tíma í að opna pakkana eftir jólamatinn og nutum kvöldsins og fórum síðan að sofa í nýjum náttfötum og hreinum rúmfötum, með nýjar bækur,“ segir Katrín.

Leigði sér bústað

Katrín segir að sér þyki óþægilegt að vera eins og pakki sem þurfi að koma með. „Nú er ég orðin ein og þar af leiðandi kemur sú kvöð að “vera einhversstaðar” og eilífar spurningar um það hvar ég ætli að vera um jólin – mér líður stundum eins og ég sé pakki sem þarf að koma fyrir. Mér finnst áreitið um jólin orðið mikið og kröfurnar töluverðar, en það er eitthvað sem ég þarf að takast á við sjálf t.d. með því að halda gjöfum í hófi, sleppa því að fara í Ikea og Rúmfatalagerinn frá október, hlusta ekki á útvarpsstöðvarnar sem spila jólalög út í eitt og lesa ekki auglýsingar sem hvetja fólk til að kaupa allt milli himins og jarðar,“ segir Katrín.

Hún segist hafa ákveðið að leiga sér bústað í fyrra. „Í fyrra tók ég þá ákvörðun að vera ein um jólin. Eiga mín jól, það er kannski mergur málsins að ég sakna þess sem var. Mig langaði að hlusta á þögnina rétt fyrir kl. 18:00 þar til jólin eru hringd inn á RÚV og heyra jólaguðspjallið. Ein – já fjölskyldan er bara ekki stærri núorðið, ég er ein flest önnur kvöld ársins og spáir held ég enginn sérstaklega í það. Hjá börnunum eru nýjir siðir – makar hafa sína siði, mikill erill fylgir barnaheimilum og við sem erum eldri erum búin með þann pakka.Ég leigði mér sumarbústað síðast liðin jól, fannst auðveldara að fara í burtu heldur en að vera ein heima, það hefði kannski orðið meira mál að fá það í gegn. Sem betur fer á ég skilningsríka að og þegar ég úrskýrði málið skildu það allir,“ segir Katrín.

Ekki slæmt að vera ein

Hún segir að sú dvöl hafi ekki verið leiðinleg. „Ég kom í bústaðinn 22. desember í yndislegu kyrru veðri og náttúran skartaði sínu fegursta, það ríkti friður yfir öllu, húsið fallegt og allt til alls. Ég hlustaði á jólakveðjurnar, fékk hangikjötslykt í húsið og skapaði góða hlýja jólastemmingu – las nokkrar bækur, réði ógrynni af krossgátum og sudoku, horfði á held ég allar bíómyndir sem RÚV bauð uppá þá vikuna. Tók með andlitsmaskann, handmaskann og góðar græjur í nærandi fótabað og nóg að borða. Tölvan varð eftir heima ég heyrði bara í fólkinu mínu í síma og sms,“ segir Katrín.

Hún segir að þetta hafi verið ein hennar bestu jóla. „Ég var þarna í viku, var reyndar að velta fyrir mér að fara heim degi fyrir áætlaðan brottfarardag en mér leið svo vel og náttúran var svo falleg að ég tímdi ekki að fara. Áður en ég lagði í hann heim á leið lagði ég á borð lítilmagnans. Það var slegið upp veislu hjá músunum undir pallinum við hús nr. 2. Ég er farin að velta fyrir mér hvar ég verð næstu jól. En eitt er víst ég geri nákvæmlega það sem mig langar til, það fer best á því og allir ánægðir. Ég braut upp hefðina og það er vel hægt, allavega upplifði ég ein af mínum bestu jólum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum
Fréttir
Í gær

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi