fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Simmi Vill minnist föður síns – Ólafur Ragnar segir hann hetju æsku sinnar

Jón Þór Stefánsson
Sunnudaginn 29. desember 2019 19:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gærkvöld lést frjálsíþróttakappinn Vilhjálmur Einarsson, 85 ára að aldri. Frá þessu greinir RÚV. Vilhjálmur var hvað þekktastur fyrir að vera fyrstur Íslendinga til að komast á verðlaunapall á Ólympíuleikunum er hann vann til silfurverðlauna í Melbourne 1956. Auk þess hefur enginn unnið titilinn íþróttamaður ársins eins oft og Vilhjálmur eða fimm sinnum.

Margir hafa minnst Vilhjálms, til dæmis sonur hans Sigmar Vilhjálmsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins Ólafur Ragnar Grímsson og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Sigmar minntist föður síns í Facebook-færslu. Þar þakkar hann föður sínum og segist afar stoltur af íþróttaafreki hans, þó er Sigmar sérstaklega stoltur af honum sem manneskju.

„Elsku Pabbi minn kvaddi í gær. Opinberlega er hann Silfurmaðurinn frá Melbourne 1956, þar sem hann fékk silfurverðlaun á ólympíuleikunum. Hefur það afrek fylgt mér frá fæðingu og rifjað upp árlega við veitingu Íþróttamanns ársins. Það er því táknrænt að hann hafi kvatt okkur sama dag og kjör íþróttamanns ársins fór fram.

Ég er svo sannarlega stoltur af því afreki föður míns.

Aldrei steig þetta afrek honum til höfuðs og hefur hann ávallt nýtt hvert tækifæri til þess að gefa þeim árangri djúpa og innihaldsríka merkingu. Undirbúningurinn, aðstöðuleysið og vantrúin á að eitthvað kæmi úr þessari ferð var eins og eldsneyti á að standa sig vel. Aðstöðuleysið var að mati föður míns kostir í undirbúningnum og vantrúin var frelsið til að gera sitt besta.

Stoltastur er ég þó af Pabba sem manneskju. Ég ólst upp hjá Skólameistaranum Vilhjálmi en ekki íþróttahetjunni. Afrek hans var eins og Íslendingasögurnar fyrir ungan dreng sem kom löngu seinna í heiminn.

Pabbi minn missti aldrei tækifæri til þess kenna manni eitthvað nýtt, opna hugan gagnvart nýjum sjónarhornum eða segja sögur. Enda var aldrei þögn í bíltúrum eða yfir kaffibollanum, það er alltaf eitthvað áhugavert að gerast í heiminum sem krefst umhugsunar og umræðu. Umburðarlyndi, kærleikur og rökhugsun var efst á blaði dygða hjá Pabba. Fordómaleysið algert og trú hans á að allir hefðu snilligáfu sem þyrfti bara finna og virkja var mikil.

Það líður ekki sú vika án þess að fólk komi upp að mér að fyrrabragði og sér ástæðu til þess að skila kveðju til hans og deila með mér upplifun sinni af kynnum sínum af honum. Oftast eru það fyrrverandi nemendur sem vilja meina að þeir eigi honum allt að þakka að þeir kláruðu menntabrautina.

Það gerir mig stoltan í hvert sinn, stoltari en þegar afrek hans á Íþróttasviðinu eru rifjuð upp, án þess að lítið sé gert úr þeim, þvert á móti. Enda sýnir þessi vitnisburður hvað hann hefur gefið mikið af sér allt sitt líf, ekki bara til okkar sonanna, heldur fjöldann allan af nemendum sínum.

Ég er núna staddur í Svíþjóð með miðju syni mínum að keppa á handboltamóti, NordenCup. Ég átti dásamlega stund með Pabba og Mömmu á Aðfangadagskvöld, þar fékk ég tækifæri til að kveðja Pabba. Hann var glaður með að nafni hans væri að keppa við Svíagrýluna og hefði hvergi annars staðar viljað hafa okkur feðga en hér saman í íþróttakeppni.

Kjörorð okkar Pabba voru: Þagmælska, Varúð, Hófsemi og Miskunnsemi. Það mun aldrei breytast. Takk fyrir allt elsku Pabbi minn!ׅ“

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, minnist einnig Vilhjálms á Twitter. Hann segir Vilhjálm hafa verið fyrirmynd sína og komandi kynslóða.

„Íslendingar syrgja nú vegna fráfalls Vilhjálms Einarssonar. Hetja æsku minnar sem fyrstur Íslendinga vann til verðlauna á Ólympíuleikunum, 1956. Nafn hann mun ávalt lifa í sögu þjóðar; innblástur fyrir hverja kynslóð.“

Auk Sigmars og Ólafs minnist Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, Vilhjálms. Hún segir hann hafa verið Þjóðarhetju og rifjar upp er hann lánaði henni teppi er þau sátu saman þegar minjasvæðið við Skriðuklaustur í Fljótsdal var opnað.

„Heiðurshöll ÍSÍ var stofnuð 2012 og þá var Vilhjálmur Einarsson í hópi fyrstu félaga hennar. Við horfðum á þrístökk Vilhjálms í gærkvöldi á árshátíð íslensks íþróttafólks þar sem Alfreð Gíslason var tekinn inn í Heiðurshöllina og Júlían J.K. Jóhannsson var tilnefndur sem íþróttamaður ársins, báðir vel að sínum heiðri komnir. Í dag fengum við svo fregnir af andláti Vilhjálms. Vilhjálmur var fyrsti fulltrúi Íslands til að vinna verðlaun á Ólympíuleikum en hann vann silfurverðlaun á leikunum í Melbourne 1956 í þrístökki og stökk þá 16,26 metra. Afrek Vilhjálms markaði djúp spor í Íslandssöguna enda einstætt fyrir fámenna þjóð sem hafði orðið lýðveldi aðeins tólf árum fyrr. Óhætt er að segja að hann hafi þá orðið þjóðhetja. Gaman er að segja frá því að ég átti því láni að fagna að sitja hjá Vilhjálmi þegar minjasvæðið við Skriðuklaustur í Fljótsdal var formlega opnað í ágústmánuði 2012. Ég var þarna mætt til að opna svæðið en þurfti að fá lánaða úlpu hjá þjóðminjaverði sökum óvenju mikils kulda. Vilhjálmur bætti um betur og breiddi yfir mig teppi þar sem við sátum saman við þessa minnisstæðu athöfn og bjargaði þar með heilsu minni. Blessuð sé minning hans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“
Fréttir
Í gær

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“
Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“