fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fréttir

Segir ekki hægt að afsaka framferði lektorsins með fíkn: „Getur nefnilega ekki læknað kvenhatur og níðingsskap með því að senda menn á Vog“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 27. desember 2019 17:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Femínistinn Elísabet Ýr Atladóttir hefur ritað pistil sem er áhugavert innlegg í umræðuna um mál lektorsins Kristjáns Gunnars Valdimarssonar og fréttaflutning um þau, en Kristján er grunaður um fíknefnaneyslu, að veita ungmennum fíkniefni á heimili sínu og fyrir kynferðisofbeldi gegn ungum konum.  Fyrr í dag tók upplýsingafulltrúinn Ragnhildur Sverrisdóttir til varna fyrir Kristján Gunnar sem hún segir vera gamlan vin sinn. Segir hún að framferði hans megi rekja til þess að hann sé sjúkur af fíkn. Ragnhildur skrifaði meðal annars:

 „Það er hörmulegt að horfa upp á einstaka fjölmiðla nánast fagna skelfilegum viðburðum í lífi gamals vinar míns. Þessi góði drengur, með glæstan feril sem lögfræðingur og kennari, er núna djúpt sokkinn fíkill. Starfið horfið, heimili hans undirlagt vikum saman af drykkju og dópi hans og neyslufélaga hans og nú hefur hann verið handtekinn, sakaður um skelfilegan glæp gegn ungri konu.“

Elísabet leggst gegn þessu viðhorfi og segir að menn verði ekki ofbeldismenn vegna fíkniefnaneyslu og ekki sé hægt að lækna þá af ofbeldi og kvenhatri með því að senda þá í fíknimeðferð. Telur hún þetta viðhorf vera dæmi um meðvirkni með ofbeldismönnum. Pistill Elísabetar er eftirfarandi:

Menn verða ekki ofbeldismenn vegna fíkniefna. Menn nauðga ekki útaf því þeir voru fullir. Menn velja að beita ofbeldi og nauðga, þeir vita hvað þeir eru að gera og það að þeir noti vímuefni þýðir ekki að þeir alltíeinu-púff verði nauðgarar alveg óvart.

Fólk vill gera mikið úr fíknivanda ofbeldismanna og láta sem það sé einhver djöfull sem býr í þeim. Djöfull sem hægt er að fjarlægja með því að fjarlægja efnin. Særa úr þeim illa ofbeldisanda einhvernveginn. En allir heilvita sérfræðingar eru sammála um að ofbeldismenn sem eiga við fíknivanda að stríða hætta ekki að vera ofbeldismenn þegar þeir fara í meðferð. Þú getur nefnilega ekki læknað kvenhatur og níðingsskap með því að senda menn á Vog. Það er engin tilviljun að svo margar konur sem fara í meðferð við fíknivanda segja sögur af ofbeldismönnum þar og hvernig þeir „veiða“ ný fórnarlömb. Samfélagið hefur vonandi ekki gleymt hvernig karlmaður nauðgaði 16 ára stelpu á Vogi fyrir stuttu.

Fíkn hefur víðtæk áhrif, það er engin spurning. Fólk getur gert allskonar sem kæmi ekki til greina ef þau væru ekki að berjast við fíknivanda. En menn sem beita ofbeldi gera það þótt þeir séu edrú. Menn undir áhrifum fíkniefna og ákveða að nauðga og berja eru grófari og hættulegri en ef þeir væru edrú.

Þótt Kristján Gunnar Valdimarsson er bara nýjasta dæmið af þeim sem fá að njóta vafans hjá mörgum – bara því hann neytti fíkniefna – þá er þetta gegnumgangandi mýta að áfengi og önnur vímuefni orsaki ofbeldi og nauðganir. Fíkniefni gera ofbeldismenn hættulegri – þau breyta engum í ofbeldismann. En fíkniefni hafa verið ofboðslega þægileg og áhrifarík leið fyrir nauðgara og ofbeldismenn til að komast hjá ábyrgð á brotum sínum. Reynum okkar besta og gerum 2020 að árinu sem við leyfum þeim það ekki.

Sjá einnig:

Ragnhildur kemur lektornum til varnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum
Fréttir
Í gær

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans
Fréttir
Í gær

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi
Fréttir
Í gær

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta