Lögreglan á Suðurlandi í samráði við svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 16 hafa tekið ákvörðun um að fresta stærri leitaraðgerðum að Rima Grunskyté Feliksasdóttur um sinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Heimamenn í Vík hafa tekið að sér að nýta að fara um fjörur á leitarsvæðinu þegar viðrarð til þess en fyrirhugað er að kalla til stærri leitar um eða undir næstu helgi þegar veðurspá er hagstæð.
Í dag var leitað á svæðinu frá Þjórsá og austur um, allt austur undir Kúðafljót, bæði á landi á fjórhjóladrifnum ökutækjum, af gangadi leitarmönnum þar sem farartæki komast ekki um og úr lofti með þyrlu Landhelgisgæslunnar, allt án þess að leitin bæri árangur. Blautt færi, ísskarir og veður almennt gerði leitarmönnum austantil á svæðinu erfitt um vik.