Hjalti Rúnar Richter hefur verið dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni og líkamsárás gegn konum. Bæði brot áttu sér stað sama kvöld, í apríl í fyrra, á Akranesi. Samkvæmt dómi káfaði Hjalti á brjóstum konu nokkurrar, var vísað úr húsi eftir það en sneri til baka með hefnd í huga.
Konan lýsti atvikinu svo þegar hún kærði Hjalta: „ákærði hefði káfað á henni innan og utan klæða er hún var stödd á heimili kunningjakonu sinnar. Hann hefði síðar sömu nótt komið aftur og þá beitt þær báðar líkamlegu ofbeldi. Sonur kunningja konunnar hefði stöðvað ákærða og vísað honum út og hefðu þær báðar þurft að leita á slysadeild vegna áverka. Kvaðst hún hafa hlotið mar á höndum og brjósti og aðra áverka. Taldi hún að kunningjakona sín myndi ekki vilja leggja fram kæru.“
Hjalti sneri svo til baka undir morgun. Samkvæmt dómi þá var árásin hrottaleg en kunningjakonan varð fremur fyrir barðinu á henni. Hjalti skallaði hana ítrekað í andlitið og sló hana með ól með kúlu á endanum. Höggin lentu handarbaki hennar. Hann sneri svo upp á handlegg konunnar sem hann hafði fyrr um kvöldið káfað á. Hann sló hana svo ítrekuðum höggum á bringu og skorið löngutöng vinstri handar hennar með oddhvössum hlut.
Í dómi segir að afleiðingar þessa hafi verið að fyrri konan „hlaut 2 sm skurð á löngutöng vinstri handar, mar á hægri framhandlegg og á vinstra brjóst og B…hlaut 2,5 smskurð ofan hægri augabrúnar, sár í hársverði á hnakka og mar aftan við og við vinstra eyra, ótilfært brot á miðhandarbeini vinstri handar, tognun og ofreynslu á hálshrygg og heilahristing“
Að lokum náði sonur annarrar konunnar að vísa Hjalta út og fór hann með þær báðar á sjúkrahúsið á Akranesi. Í dómi kemur fram að kunningjakonan hafi ekki viljað kæra Hjalta því hún óttaðist hefndaraðgerðir hans.
Líkt og fyrr segir fékk Hjalti átta mánaða fangelsisdóm en auk þess þarf hann að greiða um hálfa milljón króna til þeirra beggja í skaðabætur.