Klukkan níu í gærkvöld barst lögreglunni tilkynning um innbrot í fyrirtæki í hverfi 105 í Reykjavík. Var farið inn, hurð brotin og rótað til. Ekki er vitað hverju var stolið.
Þetta kemur fram í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir einnig frá því að ofurölvi kona var handtekin í sama hverfi um klukkan hálftvö í nótt, en hún var til vandræða. Var konan vistuð sökum ástands síns í fangageymslu lögreglu.