Mörg fyrirtæki og stofnanir hér á landi hafa gefið starfsmönnum sínum jólagjafir, nú þegar aðeins nokkrir dagar eru til jóla. Líkt og vanalega er gjafirnar misveglegar en eins og allir vita er það hugurinn sem gildir. DV hefur tekið saman upplýsingar frá starfsmönnum nokkurra fyrirtækja um jólagjafir til þeirra. Um er að ræða lauslega samantekt og er úttektin hvergi nærri tæmandi. Hvetjum við lesendur til að láta okkur vita hér að neðan hvað þeir fengu í gjöf frá sínum vinnustað.
Sjá einnig: Sjáðu hvað íslensk fyrirtæki gefa starfsfólki sínu í jólagjöf – Hver gaf veglegustu gjöfina?
Starfsmenn fjölmiðla fengu misjafnar jólagjafir. Starfsfólk DV fékk 15 þúsund króna gjafabréf í Kringlunni meðan Torg, útgáfufélag Fréttablaðsins, gaf starfsmönnum sínum gjafaöskju með Omnom súkkulaði og gjafakort í Samkaup upp á 20 þúsund krónur. Starfsmenn Morgunblaðsins fengu hins vegar ekkert.
Íslandsbanki gaf sínu fólki 30 þúsund gjafabréf í Smáralindinni. Starfsmenn Icelandair fengu 20 þúsund króna gjafabréf í verslanir 66° norður sem og húfu frá sama fyrirtæki. Bláa lónið fékk 50 þúsund í gjafakort á vegum ónefnds banka og svo gjafaöskju með vörum lónsins. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar fékk álíka einnota debetkort upp á tíu þúsund krónur. Fyrirtækið Hlaðbær Colas var gjafmilt um jólin en starfsmenn þar fengu bæði „mjög væna uppbót“ 1. desember og 80 þúsund króna gjafakort.
Ölgerðin gaf starfsfólki gistingu hjá Íslandshótelum með morgunmat og kvöldmat. Fengu svo sitt lítið af hverju í viðbót; rauðvín, sælgæti og jólaöl sem dæmi. Starfsmenn Hafrannsóknastofnunnar fengu konfektkassa og frí milli jóla og nýárs. Starfsmenn Sambíóanna fengu „fullt af nammi og tvo vip bíómiða,“ líkt og starfsmaður komst að orði. Lögreglan fær lambalæri, lítinn hamborgarhrygg, litla spægipylsu rúllu og lítinn kassa af siríus rjómasúkkulaði.
Þekking, þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni, bauð starfsfólki sínu upp á valkost, milli gjafapakka frá Norðlenska, 25 þúsund króna bankainneign eða 35 þúsund króna 66° norður inneign. Starfsmenn Dominos fengu tvo gjafabréf í Flyover Iceland, nokkurs konar 7D-bíó sýnir íslenska náttúru með ýmsum tæknibrellum. Tækjaleigan Tæki.is gaf 50 þúsund krónur og konfektkassa. Lyf og heilsa gaf matarpakka eins og þau hafa gert undanfarin ár. Það inniheldur meðal annars hamborgarahrygg, lambalæri og annað snarl. Í ár var einnig í pakkanum 7.500kr gjafabréf í Lyf og heilsu. Jólagjöf varahlutaversluninar Stillingar var 10 þúsund króna gjafabréf í Bónus og fékk stór hluti starfsfólks það afhent í gær á Þorláksmessu.
Talsverður munur er á því hvað starfsmenn Reykjavíkurborgar, eins stærsta vinnuveitanda landsins, fá eftir því hvar þeir vinna. Starfsfólk Melaskóla fékk til að mynda ekkert en kennari nokkur skýrir þetta í þræði innan Facebook-hóp Sósíalista: „Reykjavíkurborg gaf Borgarleikhúsmiða eins og endranær, enda ókeypis gjöf fyrir borgina þannig séð. Í fyrsta sinn eftir hrun var gefið grænt ljós á að grunnskólar gæfu starfsfólki að auki allt að 5000 kr gjöf (reyndar var reynt að lækka það í 3000kr með fyrirvara um að skólar sem væru í plús á fjárhagsáætlun mættu fara upp í 3500 en sú tilraun mistókst). Allur gangur á því hvernig skólar útfærðu þetta.“
Hið gífurlega umdeilda fyrirtæki um þessar mundir, Samherji, var gjafmilt við sína starfsmenn, í það minnsta í landi, en þeir fengu 200 þúsund krónur. DV er ekki kunnugt um neinn vinnuveitanda sem gaf meira. Sá sem kemst næst því er álíka umdeildur og útgerðin, Alþingi. Þingmenn fá 180 þúsund króna jólabónus.