„Ef umsækjandi hins vegar óskar sjálfur nafnleyndar þá á að virða þá ósk,“ segir Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra.
Eins og kunnugt er ákváð stjórn RÚV að birta ekki nöfn umsækjenda um starf útvarpsstjóra, en umsóknarfresturinn ran út 2. desember. Þessi ákvörðun, að birta ekki nöfnin, hefur valdið deilum og sitt sýnist hverjum; sumir eru þeirrar skoðunar að nafnleynd sé eðlileg til að tryggja að umsóknir berist frá hæfustu einstaklingunum. Aðrir benda á að nafnleyndin geri það að verkum að auðveldara verður að handvelja þann einstakling sem „hentar“ í starfið.
Ögmundur skrifar um málið í Fréttablaðið í dag og segir:
„Auglýst hefur verið starf útvarpsstjóra. Umsóknir nema tugum. Fjölmiðlar velta vöngum, vel meðvitaðir um að tal og skrif um kost og löst á fólki er vinsælt umfjöllunarefni; hægt að gera sér mat úr slíku lengi vel. En stjórn Ríkisútvarpsins eyðileggur þennan leik og vill leggja það í mat umsækjenda sjálfra hvort nöfn þeirra skuli birt.“
Ögmundur bendir á að sumir haldi því fram að nafnleynd um umsækjendur stríði gegn gagnsæi og komi í veg fyrir aðhald gagnvart hinu opinbera.
„Ekki verður annað skilið en umboðsmaður Alþingis sé kominn í þessa liðssveit. Vissulega getur það verið rétt að nafnleynd sé misnotuð, til dæmis ef hunsa á hæfa umsækjendur. Þá er eðlilegt, og meira að segja bráðnauðsynlegt, að öllum sé kunnugt um að þeir hafi boðið fram starfskrafta sína. Öllum megi þá ljóst vera að gengið hafi verið fram hjá þeim.“
Ögmundur segir að ef umsækjandi óskar sjálfur eftir nafnleynd eigi að virða þá ósk.
„Þá eru líka fallin út aðhaldsrökin. Hæfir umsækjendur sækja iðulega ekki um starf sem óljóst er hvort þeir fengju, vilja ekki að komist í hámæli að svo stöddu að þeir gætu hugsað sér til hreyfings á núverandi vinnustað. Slíkt er skiljanlegt og ber að virða. Ætla má að nafnleynd, sé hennar óskað, kalli þannig á f leiri hæfa umsækjendur. Rök fyrir nafnbirtingu eru þá að engu orðin. Eftir stendur þá bara eitt, forvitni og hnýsni.“