Laust fyrir hádegi í dag var tilkynnt um atvik þar sem maður ók inn í anddyri fjölbýlishúss. Gerðist þetta í Hafnarfirði. Engin meiðsl urðu á fólki.
Þetta kemur fram í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir einnig frá því að líkamsárás átti sér stað í Vesturbænum síðdegis í dag og var einn handtekinn vegna málsins.
Minniháttar slys varð á skautasvelli í miðborginni í dag og fóru lögregla og sjúkralið á vettvang. Í Breiðholti féll kona í hálkunni í jörðu og fékk sár af. Var hún flutt með sjúkrabíl á Slysadeild til aðhlynningar.