Körfuboltakappinn Kjartan Atli Kjartansson hefur átt góðu gengi að fagna í fjölmiðlabransanum síðustu ár, hvort sem það er á prenti, í útvarpi eða sjónvarpi. Kjartan er sonur Ásu Steinunnar Atladóttur hjúkrunarfræðings og Kjartans Sigtryggssonar, fyrrverandi lögreglumanns. Fósturdóttir Kjartans eldri er söngkonan Ruth Reginalds, sem búsett hefur verið erlendis síðustu ár. Ruth er Íslendingum góðkunn og hefur lagt sitt af mörkum í jólahefðir margra með laginu Þú komst með jólin til mín ásamt Björgvini Halldórssyni.