Freydís Halla Friðriksdóttir hefur vakið mikla athygli með pistil sem hún deildi á Facebook. Þar bendir hún á vissan tvískinnung sem ríkir í hjúkrunarfræðinámi í dag.
Þar er beitt strangri fjöldatakmörkun þrátt fyrir að skortur sé á hjúkrunarfræðingum á íslenskum heilbrigðisstofnunum.
„Það vantar hjúkrunarfræðinga. Þetta er setning sem við höfum öll heyrt og heyrum öll sennilega um það bil einu sinni í mánuði.
Núna voru 78 einstaklingar sem náðu öllum prófum í klásus í hjúkrunarfræði í Háskólanum á Akureyri. Af þessum 78 einstaklingum eru 56 sem komast áfram inn í námið. Það komast ekki fleiri áfram, alveg sama hvernig þeim gekk í prófunum. Það er vegna fjárskorts. Það er vegna þess að það eru ekki til nægilega mörg pláss fyrir nemendur inni á heilbrigðisstofnunum landsins. Er okkur allavega sagt.”
Freydís bendir á að í hópi nemenda eru einstaklingar sem hafa lagt sig mikið fram í haust og í vetur til að ná prófunum, þeirra á meðal sjúkraliðar sem hafi í mörg ár unnið innan heilbrigðiskerfisins. „Í þessum hópi er fólk sem hefur lagt mjög mikið á sig síðan í lok ágúst til þess að ná þessum prófum. Í þessum hópi eru sjúkraliðar, einstaklingar sem hafa unnið í mörg ár innan heilbrigðiskerfisins og vita nákvæmlega út í hvað þau eru að fara. Í þessum hópi er líka fólk sem er búið að reyna oftar en einu sinni að komast inn í námið. Segir það okkur ekki eitthvað?”
Á sama tíma er verið að auglýsa eftir einstaklingum til að hefja nám á 2 ára námsbraut í hjúkrunarfræði sem stendur þeim sem þegar hafa lokið háskólaprófi til boða.
„Er hægt að hleypa þessu fólki inn, en ekki þeim 22 sem stóðust prófin sín í HA? Fólk sem er jafnvel með yfir 7 í meðaleinkunn. Fólk sem hefur virkilega sýnt að það hefur áhuga á náminu. Eru frekar til peningar fyrir þá sem eru búnir með aðra háskólagráðu? Er frekar pláss fyrir þetta fólk í námsplássin á heilbrigðisstofnunum ?”
Freydís spyr hvort það sé hún ein sem finnist eitthvað athugavert við þessa aðferðarfræði og skorar hún á menntamálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, að taka málið til skoðunar.
„Er ég ein um að finnast þessi staða skrýtin? Ég skora á Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, að skoða þetta mál.”