fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Úlfúð vegna bókar Einars Kára um ævi Friðriks Þórs – „Sár yfir að einhverju væri stolið frá frænda?“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 21. desember 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Andri Thorsson,  gagnrýnir nýja bók Einars Kárasonar um ævi Friðriks Þórs Friðrikssonar á Facebook í dag. Vænir hann Einar meðal annars um að hafa stolið titli bókarinnar, Með sigg á sálinni.

„Ég skil ekki alveg titilinn heldur; vissulega hefur Frikki orðið fyrir margvíslegum áföllum um sína daga – og margoft risið á ný – en þegar Ólafur Thors talaði um að hann væri kominn með sigg á sálina vísaði hann til þess að illt umtal sem stjórnmálunum fylgir, slúður og níð hefði ekki áhrif á sig enda væri hann „kominn með sigg á sálina“. Þarna hefur snjöll líking verið tekin traustataki án mikillar umhugsunar,“ skrifaði Guðmundur Andri.

Einar Kárason hefur svarað fyrir þennan meinta stuld frá Ólafi Thors í færslu á Facebook.

Hér á feisbúkk hafa menn í dag fjasað af litlu viti um ævisögu Friðriks Þórs, og meðal annars að titillinn sé stolinn frá Ólafi Thors“

Einar segir titilinn eðlilegan í ljósi þss að Friðrik Þór heldur mikið upp á leikritið Hamlet, en þaðan sé titillinn kominn.

„Reyndar er það svo að Frikki heldur mikið upp á leikritið Hamlet, sem margir kannast við, og sótti líkinguna þangað:

„Fyrsti grafari grefur og syngur.

Hamlet: Er karlinn öldungis kærulaus við verk sitt? hann syngur meðan hann tekur gröf!

Hóras: Vaninn hefur þæft honum sigg á sálina.“

(William ShakespeareHamlet. Þýð: Helgi Hálfdanarson)

Það er einkennilegt ef ekki má vitna í Sjeikspír án þess að fá leyfi til þess frá Thórsættinni.“

 

Guðmundur Andri svarar í athugasemd við færsluna og spyr hvort hann sé þá núna orðinn af Thórsættinni

„Það er alltaf viss áfangi í samræðum. Athugasemdir mínar við bókina snerust að vísu hvorki um þetta né Askenasí, og það veistu jafn vel og ég, Einar Kárason“

Einar spyr þá á móti hver hafi eiginlega dregið Thórsættina inn í umræðuna.

„Bíddu, hver dró Thórsættina inn í þessa umræðu? Sár yfir að einhverju væri stolið frá frænda?“

Fræg eru ummæli Ólafs Thors, fyrrverandi forsætisráðherra, er hann var skammaður á fundi og svaraði að bragði: Það þýðir ekkert fyrir ykkur að skamma mig. Ég er löngu kominn með sigg á sálina.“ Síðan þá hefur þessi frasi gjarnan verið tileinkaður Ólafi og þykir merkja að vera orðinn reynslunni ríkari. Var Ólafur þekktur fyrir orðheppni sína og hnyttni til að mynda á að hafa verið kallað inn í ræðu hjá honum að hann kynni ekki muninn á þorski og ýsu og svaraði Ólafur þá um hæl: Ég þekki þó að minnsta kosti muninn á þér og þorski og það er meira en margir gera.“

Friðrik Þór Friðriksson gaf þó út örsögur árið 1985 sem einnig báru nafnið : Með sigg á sálinni, svo þessi frasi hefur honum ekki verið alls kostar ókunnugur og því líklega eðlilegt og skiljanlegt að ævisaga hans beri það nafn, enda fjallar hún um það einmitt að vera orðinn reynslunni ríkari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast
Fréttir
Í gær

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“