fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Mikil reiði vegna ástandsins í borginni: Topparnir fá ókeypis mat á meðan starfsmenn borgarinnar mega ekki borða afgangana

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 20. desember 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband sem Efling deildi á Facebook-síðu sinni í gær hefur vakið mikla reiði og undrun í hópi Sósíalistaflokksins á Facebook.

Myndbandið sem um ræðir sýnir þær Jóhönnu og Ingibjörgu að vinnu en þær vinna í eldhúsi í félagsmiðstöð eldra fólks sem er á vegum Reykjavíkuborgar. Í myndbandinu segja þær meðal annars frá laununum sem þau fá fyrir 100% starf en þær fá um 355 þúsund krónur á mánuði fyrir 100% vinnu. Þær fá þá útborgaðar um 260 þúsund krónur. Önnur þeirra segist vera á leigumarkaði en leigan tekur upp nánast allan launaseðilinn. Auk þess fá þær ekki frían mat í vinnunni en þær mega kaupa hann á fullu verði.

„Hvers konar hugarfar er þetta hjá borginni?“

Þetta vakti reiði innan Sósíalistahópsins. Það sem vakti þó enn meiri reiði var það að þær Jóhanna og Ingibjörg mega ekki borða afgangana sem verða af matnum sem þau elda fyrir fólkið. „Við megum ekki borða afgangana, við verðum að henda þeim því að þeir treysta okkur ekki fyrir því að skammta fólkinu minna svo við fáum afganga,“ sögðu þær í myndbandinu. „Það sem stingur mest í þessari frásögn eru tilmæli yfirmanna til þessara starfsmanna. Þær mega ekki fá sér ef einhver afgangur er af matnum, það á að henda honum. Hvers konar hugarfar er þetta hjá borginni?“ spyr Þórður nokkur í Sósíalistahópnum.

„Ótrúlegt að heyra að starfskonur í eldhúsum borgarinnar þurfi að taka með sér nesti í vinnuna og verði að henda öllum afgöngum. Hreint og klárt stílbrot á endurvinnslu og sjálfbærni,“ segir einn meðlimur hópsins og taka margir undir þetta. „Þessi fáránlega regla hefur viðgengist í áratugi, væri nær að fólk sem vinnur í eldhúsunum væri á fríu fæði“

„Hætta þessu siðleysi Dagur“

Þá er bent á kaldhæðnina eða jafnvel hræsnina í því að þessir starfsmenn megi ekki borða afgangana en á sama tíma fær Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og aðrir borgarfulltrúar Reykjavíkur frían dýrindismat í boði Reykjavíkuborgar. „Fólk með milljónir í laun á mánuði fær frítt fæði en fólk á launum undir fátæktarmörkum þarf að borga fullt gjald, jafnvel þótt vinnustaðurinn hendi hundruðum kílóa af mat á ársgrundvelli. Skrítið þjóðfélag,“ segir sami Þórður og deildi myndbandinu innan hópsins.

„Er ekki komin tími á að hann borgi fyrir sinn fína hádegismat á nánast heimsins hæstu borgarstjóra launum,“ segir annar meðlimur. „Hætta þessu siðleysi Dagur og matarsóun.“ Þá segir kona nokkur að það sé makalaust að borgarstjórn kunni við það að fá frítt fæði á ofurlaunum. Maggi nokkur vill losna við borgarstjórnina og segir: „Þetta lið í borgarstjórn hagar sér eins og kóngar með leiguþý í kring um sig, burt með þetta rugl og óstjórn!!“

„Mér fannst hræðilega sorglegt að horfa á allan matinn fara í ruslið“

Kona nokkur í hópnum hefur svipaða sögu að segja og Jóhanna og Ingibjörg. Árið 2006 vann hún í leikskóla en þar þurfti að henda öllum matarafgöngum. „Á sama tíma var ég að upplifa mikla fátækt og mjög erfitt að eiga fyrir mat fyrir mig og syni mína tvo,“ segir hún. „Það var svo þröngt í búi að ég man hvað ég var glöð ef pabbi þeirra sótti þá um helgar fyrir kvöldmatartíma. Mér fannst hræðilega sorglegt að horfa á allan matinn fara í ruslið því ég vissi að synir mínir hefðu verið glaðir að fá þennan mat í staðinn fyrir kannski samloku í kvöldmatinn. Sorglegar reglur hjá Reykjavíkurborg en þetta var leikskóli á þeirra vegum.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum