Vændi blómstrar hér á landi þrátt fyrir að ólöglegt sé að kaupa það. Á hinni viðurstyggilegu vefsíðu Chansluts ræða menn vændiskaup sín nokkuð opinskátt í skjóli nafnleyndar. Fyrir um viku deildi einn maður þar áhyggjum sínum yfir því að hann hafi gerst aðili að mansali.
Hann segist ekki vanur að gefa vændiskonum neikvæðar umsagnir en nú sé honum ekki rótt. Hann deilir auglýsingu hennar og skrifar meðal annars: „Reyndi að biðja hana um að slaka á en gékk ekki þ.a. ég stóð upp og fór, 20k fátækari og ófullnægður. Hún er staðsett á Nönnugötu, aðstaðan er léleg og sýnist nokkrar stúlkur starfa þarna með eða undir handleiðslu Cparty. Grunar mansal í gangi þarna og full ástæða til að forðast þennan stað,“ skrifar maðurinn.
Þetta innlegg fær misjöfn viðbrögð, sumir segja hann „aumingja“ meðan aðrir hrósa honum og þakka fyrir ábendinguna. „Ég er einn af þeim sem er haldinn þeirri ranghugmynd að sumar stúlkur hafi valið sér þennan starfsvettvang sjálfviljugar og hafi ekki verið neyddar út í þetta. Ef ég fæ á tilfinninguna með stúlku að þetta sé henni þvert um geð þá á ég ekki í nokkrum vandræðum með að ganga í burtu þótt hann sé beinstífur, og það hefur ekkert með aumingjaskap að gera. Ég ætla samt ekki að vera með einhvern siðferðispistil hérna, ég er jú að kaupa mér aðgang að líkama konu, en ég vil fá það á tilfinninguna að hún sé að selja sig sjálfviljug því annars er þetta bara ofbeldi,“ skrifar einn notandi, mögulega sá sem skrifaði fyrsta innleggið.
Einn maður, augljóslega ekki sá sem skrifar fyrstu færsluna, segir svo: „Ánægður með þig. Ekki skipta við aðila sem stunda mansal. Láta lögguna um slíkt. Hún á örugglega samt ekki eftir að gera neitt í þessu en það er um að gera að ná í skottið á þeim sem eru að senda gera þessar smápíkur út.“
En svo kemur athugsemd skrifuð á ensku og er óhætt að segja að sá sem það skrifar virðist þekkja vel til vændis og mansals. Sá sem skrifar það segir að konurnar komi hingað sjálfviljugar því þær „elski peninga“. Viðkomandi segir að þær væru þó í misgóðu skapi ef „kötturinn þeirra“ hefði til dæmis dáið. Sá segir svo að íbúðin á Nönnugötu væri einungis Airbnb-íbúð sem vændiskonan hafi tekið á leigu.
Rétt er að taka fram að samtökin Stígamót skilagreina vændi sem birtingamynd kynferðisofbeldis. Á vefsíðu samtakanna segir: „Lítið er vitað um stöðu vændismála á Íslandi en sá raunveruleiki sem blasir við okkur hjá Stígamótum sýnir að það er stórt vandamál sem nauðsynlegt er að horfast í augu við. Þörf er á viðhorfsbreytingu og aukinni umræðu um afleiðingar af vændi. Nauðsynlegt er að upplýsa bæði fagfólk og almenning um þann skaða sem fólk verður fyrir í vændi. Bæði karlar og konur hafa leitað til Stígamóta í gegnum tíðina vegna vændis. Það sem er sameiginlegt með konum og körlum sem eru í vændi eru afleiðingarnar. En fyrst og fremst er þó um konur að ræða.“