Hlynur Kristinn Rúnarsson, stofnandi samtakanna Það er von, sem sinna aðstoð við fíkniefnaneytendur í bata, veltir fyrir sér hver sé ástæðan fyrir því að karlar taka eigið líf í meira mæli en konur. Í færslu á Facebook nefnir hann sem dæmi að klám brengli hugmyndir karla um eigið gildi.
„Þetta eru skráð inn á Landlæknisembættinu:
29 sjálfsvíg karla árið 2018 – 5 sjálfsvíg kvenna
32 sjálfsvíg karla árið 2017 – 2 sjálfsvíg kvenna
36 sjálfsvíg karla árið 2016 – 4 sjálfsvíg kvenna
Þessar tölur eru sláandi. Þetta fær mann til þess að hugsa. Af hverju er þessi afgerandi munur á milli kynjanna? Í undirheimum er hlutverk kynjanna mjög ólík. Líkamlegir yfirburðir karlanna eru áberandi. Og oft þessi gamla tugga um að karlmaðurinn eigi að skaffa og konan eigi að vera undirgefin. Óheilbrigð samskipti kynjanna í neyslu eru mjög áberandi. fíkn, losti, gredda, klám og dýrslegar hvatir eru oft ráðandi í þessum samskiptum kynjanna. Stelpur í undirheimum laðast að þeim sem eru alpha eða eiga efni til að fóðra fíknina,“ segir Hlynur.
Hlynur segist þekkja þetta vel: „Það er samt þannig að bæði kyn beita ofbeldi, bæði kyn eru í sölu og dreifingu, bæði kyn ljúga og stela. En það er eins og dýraríkið „undirheimar” sé mjög frumstætt. Þar sem stóri sterki brjálæðingurinn eða sá sem á peningana/efnin nær í stelpurnar eins og stóra górillan í górilluhópnum fær kvk górillurnar. Þar sem ég er einn af þeim sem hefur lagt ýmislegt á sig til þess að vera eftirsóknarverður hjá stelpum og þekkja það eflaust margir kk. Bæði hef ég reynt að verða stór og sterkur og eiga peningana… til að heilla…“
Sjá einnig: Hlynur sagður hrotti og ofbeldismaður: „Hvað viltu að ég geri við þessa greddu?“
Hlynur segist hafa reynt að vera slíkur maður. „Ég reyndi að vera þessi glansmyndabófi og svona eftir á litið líklegast mikið til að ganga í augun á stelpum. Þótt ég hafi kannski ekki alveg séð það þá… Ég var alltaf að reyna að fitta í ímynd sem ég taldi að karlmenn ættu að vera. Þessi steríoímynd um karlinn sem skaffar, sem þénar, sem er stór og stæltur og skorinn. Sem er harður og án veikleika. Svo með bullandi minnimáttarkennd yfir typpastærð úr klámmyndum að vera að bera mig saman við klámmyndaleikara. Með öll þessi gildi um hvernig ég ætti að vera sem karlmaður lánað úr samfélaginu mínu,“ segir Hlynur.
Hann segist hafa lært að elska sig. „Ég gat ekki uppfyllt þessar kröfur samfélagsins sem ég var í um að vera þetta allt. Ég er tilfinningaríkur, ég er viðkvæmur, ég er blíður, ég er thinker (minna do’er), bara með eðlilegt typpi, eðlilega vöðva…Þetta er ekki beint þessi steríotýpa karlmennskunnar… en ég er að læra að elska mig eins og ég er… og geri mitt besta.. Sjálfsvíg er ein tegund af flótta og ég virkilega vill að allir strákar viti og auðvitað stelpur,“ segir Hlynur.
Hann segir að lokum ef þú ert í sjálfsvígshugleiðingum að muna að það er von. „Þú ert nóg, þú ert verðugur ást frá þér og öðrum, með þínum kostum og göllum. það er hægt að læra að elska sig það er hægt að vinna sig uppúr þessari vanlíðan. Ef þú ert með sjálfsvígshugsanir, plís gerðu það fyrir mig tjáðu þig við einhvern sem þú treystir. Opnaðu þig, það er í lagi að hafa tilfinningar… þótt þú sért karlmaður…heppilegt að sjálfsvinna er að detta í tísku… tölum saman.“