Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Vátryggingafélags Íslands (VÍS). Hjá VÍS mun hún miðla upplýsingum um félagið til fjölmiðla og markaðsaðila og bera ábyrgð á framfylgd samfélagsstefnu félagsins.
Erla hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hún var meðal annars starfandi framkvæmdastjóri hjá Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, viðskiptastjóri hjá Brandenburg auglýsingastofu, verkefnastjóri á samskipta- og markaðssviði hjá Straumi fjárfestingarbanka og starfaði lengi hjá RÚV, bæði í sjónvarpi og útvarpi. Nú síðast starfaði hún hjá Stekk, fjárfestingarfélagi. Erla
stundar nú MBA nám við Háskólann í Reykjavík (HR) og lýkur prófi næsta vor. Hún er jafnframt með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá HR og Viðskiptaháskólanum í
Kaupmannahöfn (CBS). Erla er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands.
,,Ég hlakka mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni hjá þessu öfluga félagi. VÍS er á öruggri siglingu til móts við nýja tíma” segir Erla.
Hún hefur nú þegar hafið störf.