Áslaug nokkur, guðfræðinemi, sagði frá bréfasamskiptum sínum við fanga sem er á dauðadeild (e. death row) á Twitter-síðu sinni.
„Ég á pennavin á death row (í gegnum samtök sem vilja efla andlega heilsu fanga) og það gleður mig ekkert meira en þegar hann sendir mér bréf til að þakka mér fyrir að senda honum bækur eftir íslenska höfunda, notaðar og ódýrar af Amazon en þær bæta líf hans til muna.“
Áslaug segir að hægt sé að koma sér í samband við fanga í gegnum WriteAPrisoner. Sjálf er hún að taka þátt í sérstöku verkefni, en tekur þó fram að hægt sé að senda bréf til fanga hvenær sem er.
„Þetta er með betri ákvörðunum sem ég hef tekið. Hann er búinn að vera vinur mitt í 1 ár núna og hefur hjálpað mér mikið. Við spjöllum um allt milli himins og jarðar, hvernig mér líður, sögur af lífinu sem hann lifði, hvað hann vildi hafa gert öðruvísi, illsku, ást & börnin hans.“
Nokkrar spurningar hafa borist til Áslaugar vegna málsins, meðal annars varðandi vitneskju hennar um glæpina sem fanginn hefur verið dæmdur fyrir. Áslaug segist hafa valið hann sjálf, lesið skjöl um hann, séð myndbönd af réttarhöldum hans.
Áslaug nefnir nokkrar gjafir sem hún hefur sent fanganum, þar má nefna bækur eftir Halldór Laxness, Gunnar Gunnarsson, Hönnuh Kent, auk þjóðsagnasafns, orðabókar og Harry Potter.
Fanginn sem er vinur Áslaugar er ,líkt og áður kom fram, á dauðadeild. Það þýðir að hann hefur verið dæmdur til dauða og bíður aftöku.
Ég á pennavin á death row (í gegnum samtök sem vilja efla andlega heilsu fanga) og það gleður mig ekkert meira en þegar hann sendir mér bréf til að þakka mér fyrir að senda honum bækur eftir íslenska höfunda, notaðar og ódýrar af amazon en þær bæta líf hans til muna.
— áslaug (@gedveik) December 15, 2019