fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Fréttir

Blaðamenn Mbl.is ósáttir með ritstjóra og framkvæmdastjóra

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. nóvember 2019 18:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Átján blaðamenn á vefmiðli Morgunblaðsins eru svekktir með ritstjóra sína og lausapenna sem kallaðir voru til að ganga í störf á meðan vefblaðamenn lögðu niður vinnu frá klukkan 10-14 í dag. Þetta var gert í samræmi við tímabundna vinnustöðvun blaðamanna á netmiðlum sem samþykkt var í atkvæðagreiðslu félagsmanna Blaðamannafélags Íslands til áréttingar kröfum félagsmanna í Blaðamannafélaginu í kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins. Verk­falls­verðir fylgdust með því að ekkert efni væri sett á vef­miðla þeirra fjöl­miðla sem stóðu í verk­fallinu í þessa fjóra tíma.

Jón Pétur Jónsson fréttastjóri Mbl.is og Víðir Sigurðsson, yfirmaður íþróttadeildar Morgunblaðsins, eru á meðal þeirra sem skrifa undir yfirlýsingu sem birt var ávef Blaðamannafélagsins en þar segir að umræddu fréttaskrifin voru með vitund og vilja ritstjóra og framkvæmdastjóra Morgunblaðsins.

„Við undirrituð blaðamenn og fréttastjórar á frétta- og íþróttadeild mbl.is lýsum yfir vonbrigðum með þetta framferði og þau viðhorf til löglega boðaðra aðgerða sem þarna birtast. Við teljum að þetta framferði sé til þess fallið að varpa rýrð á mbl.is, ekki síst þá blaðamenn sem þar starfa og leitast eftir fremsta megni við að sinna starfi sínu af heilindum og fagmennsku. Að okkar mati er þetta síst til þess fallið að finna vænlega lausn á kjaradeilunni sem nú stendur yfir,“

segir í yfirlýsingunni, en undir hana skrifa:
Anna Sigríður Einarsdóttir, Anna Lilja Þórisdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Erla María Markúsdóttir, Freyr Bjarnason, Guðmundur Hilmarsson, Guðrún Hálfdánardóttir, Hallur Már Hallsson, Ívar Benediktsson, Jóhann Ólafsson, Jón Pétur Jónsson, Kristján Jónsson, Sindri Sverrisson, Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Víðir Sigurðsson, Þorgerður Anna Gunnarsdóttir, Þorsteinn Ásgrímsson Melén og Þórunn Kristjánsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum
Fréttir
Í gær

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu
Fréttir
Í gær

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið