fbpx
Mánudagur 15.september 2025
Fréttir

Erna Ýr hjólar í Þórð Snæ: „Athugið að þetta er reyndur ritstjóri fjölmiðils – en ekki blindfullur virkur í athugasemdum“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. nóvember 2019 12:10

Erna Ýr Öldudóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erna Ýr Öldudóttir, sem er einna þekktust fyrir að afneita loftslagshlýnun, hjólar í Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, á Facebook. Ástæðan er skrif Þórðar á Twitter um ritstjórnarpistla Viðskiptablaðsins, Óðinn.

Þórður gagnrýnir Óðinn harðlega og skrifar: „Óðinn í VB er með því ömurlegasta efni sem boðið er upp á í íslenskum fjölmiðlum. Hópur frekar mannfjandsamlegra, en peningaelskandi, lítilla kalla sem skrifa nafnlaust níð og sérhagsmunavarnir vikulega. Nýjasta útgáfan stendur verulega undir nafni.“ Þórður Snær vísar svo í pistil Óðins þar sem fréttaflutningur af Samherjamálinu er gagnrýndur.

Líkt og fyrr segir þá er Ernu Ýr misboðið yfir skrifum Þórðar. „Ritstjóri Kjarnans, fullur af heilagri siðvendni og sjálfréttlætingu, tekur æðiskast á Twitter út af málefnalegri yfirferð Óðins í Viðskiptablaðinu um Kveiks-umfjöllun um Samherja, og málum þar sem áður hefur verið hrapað að ályktunum í fjölmiðlum og annarsstaðar – en ekki hefur staðið steinn yfir steini þegar í dómsal var komið, eða til Mannréttindadómstólsins,“ skrifar Erna Ýr.

Hún gerir svo að umtalsefni að hann sé ritstjóri en ekki almennur borgari. „Ætli honum finnist að RÚV hafi nú stöðu óskeikuls dómsstóls, þar sem menn eru rannsakaðir, ákærðir og sekir fundnir? Reynslan fram að þessu hefur ekki verið góð, þegar það hefur verið gert. Athugið að þetta er reyndur RITSTJÓRI fjölmiðils – en ekki blindfullur virkur í athugasemdum úti í bæ (vona ég),“ skrifar Erna Ýr.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Forstjóri Play boðaði til starfsmannafundar

Forstjóri Play boðaði til starfsmannafundar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nígeríska brúðurin greinir frá því hvers vegna hjónin völdu Ísland – „Ísland við elskum þig svo mikið“

Nígeríska brúðurin greinir frá því hvers vegna hjónin völdu Ísland – „Ísland við elskum þig svo mikið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Norðurlandamót unglinga í kraftlyftingum haldið hér á landi um helgina

Norðurlandamót unglinga í kraftlyftingum haldið hér á landi um helgina
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kemur Quang Le til varnar – Útskúfun úr samfélaginu að hafa ekki aðgang að bankareikningi

Kemur Quang Le til varnar – Útskúfun úr samfélaginu að hafa ekki aðgang að bankareikningi