Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst heldur óvenjuleg beiðni á dögunum, en hún lýsir sér þannig að erlendur ferðamaður leitaði til embættisins í þeirri von um að fá aðgang að fangageymslu. Ætlaði hann að biðja kærustu sinnar í geymslu á meðan á ferðalagi þeirra hér á landi stóð.
Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar var hugmynd ferðamannsins ekki fullmótuð, en hann vildi þó enda í fangageymslunni og biðja þar sinnar heittelskuðu. Eftir efnislega meðferð var beiðninni hafnað hjá embættinu. Lögreglan segir að um ástæður neitunarinnar þarf kannski ekki að hafa mörg orð, en aðstæður í fangageymslunni eru sjaldan eða aldrei rómantískar og starfsemin þar jafnan viðkvæm svo aðeins það sé nefnt til sögunnar.
Ekki var á ferðamanninum að skilja að hann eða kærastan ættu sér einhverja sögu sem tengdist fangageymslum almennt heldur mun hugmynd hans hafa kviknað eftir að hafa skoðað myndir frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á Instagram. Eftir afgreiðslu málsins var manninum óskað alls hins besta í þeirri von að hann finndi heppilegan stað fyrir bónorðið. Hvort það tókst er ekki vitað, né heldur hvort kærastan sagði já ef hann þá bar upp bónorðið. Lögreglan vonar samt að það hafi verið raunin og að málið hafi fengið farsælan endir.