fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fréttir

Vilhjálmur birtir mynd: 30 stærstu fyrirtækin árið 1979 – „Í dag er allt farið“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 4. nóvember 2019 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta er listi yfir þrjátíu stærstu fyrirtækin á Íslandi árið 1979,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ. Vilhjálmur birti athyglisverða mynd á Facebook-síðu sinni í gær en á henni sást listi yfir 30 stærstu fyrirtækin hér á landi árið 1979. Af listanum að dæma birtist hann fyrst í tímariti Frjálsrar verslunar.

Vilhjálmur bendir á að í þrítugasta sæti á umræddum lista hafi verið útgerðarfyrirtækið Haraldur Böðvarsson & co. Fyrirtækið hafi verið algjör burðarstólpi í atvinnulífi Akurnesinga, allt til ársins 2017.

„Í dag er allt farið eða með öðrum orðum fyrirkomulag sem stjórnmálamenn hafa búið til í kringum sjávarútveg hefur leitt til þess að búið er að slátra nánast öllum sjávarútvegi á Akranesi og reyndar vítt og breitt um landið,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir það þyngra en tárum taki að sjá hvernig aflaheimildir hafa þjappast á örfáar hendur með skelfilegum afleiðingum fyrir hinar dreifðu byggðir þessa lands. Byggðir sem hafa reitt sig á veiðar og vinnslu sjávarafurða.

„Á þessari mynd sést hvað HB & co var okkur Akurnesingum gríðarlega mikilvægt, en eins og sjá má þá voru meðallaun hjá þessu fyrirtæki þau næstmestu á öllu landinu árið 1979. Það er ömurlegt að það sé hægt að svipta heilu byggðarlögunum lífsviðurværi sínu eins og gerðist hjá okkur og víðar um landið á einni nóttu og það þrátt fyrir [að] lög um stjórn fiskveiða eigi að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu,“ segir Vilhjálmur sem vísar í umrædd lög. Þar segir:

1.gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.

Vilhjálmur segir ljóst að þessi lagagrein hafi margoft verið brotin af hinum ýmsu útgerðarmönnum.

„En eitt er líka víst að það er ekki lengur við hæfi að syngja „kátir voru karlar á kútter Haraldi til fiskiveiða fóru frá Akranesi og allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó“. Jú allir komu þeir aftur heim, en stjórnmálamenn sáu um að sjávarútvegur á Akranesi og vítt og breitt um landið dó!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ný könnun sýnir djúpa gjá á milli vestur- og austurhluta Reykjavíkur – Sjálfstæðisflokkurinn höfðar ekki til ungra kjósenda

Ný könnun sýnir djúpa gjá á milli vestur- og austurhluta Reykjavíkur – Sjálfstæðisflokkurinn höfðar ekki til ungra kjósenda
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Taldi sig vera í ástarsambandi við Chat GPT botta – Réðist á lögreglumenn og var skotinn til bana

Taldi sig vera í ástarsambandi við Chat GPT botta – Réðist á lögreglumenn og var skotinn til bana