fbpx
Fimmtudagur 10.júlí 2025
Fréttir

Margrét lýsir nótt á bráðamóttökunni: „Starfsfólkið gekk ekki um gangana heldur hlupu flestir“

Auður Ösp
Sunnudaginn 27. október 2019 08:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Sigurðardóttir er búsett á Egilsstöðum. Hún leitaði á bráðamóttöku LSH í Fossvogi þann 17. september síðastliðinn. Í sex daga hafði hún verið lömuð á hægra auga og glímt við höfuðverk og uppköst. Grunur lék á blæðingu í heila eða tappa og var henni vísað suður af vakthafandi lækni á Egilsstöðum.

„Klukkan sex mætum við og maðurinn minn þar sem ég á að tilkynna mig inn, þar sem minn læknir var búinn að melda mig frá Egilsstöðum.“

Margrét heldur úti rás á Snapchat undir nafninu Maggaloo. Þannig lýsir Margrét upplifun sinni af bráðamóttökunni.

„Ég beið frammi í rúman klukkutíma þar til ég var loksins kölluð inn. Þar þurfti ég að dúsa svo í marga klukkutíma. Æðaleggur var settur upp á 5 sekúndum, frammi á gangi fyrir framan annað fólk.  Svo tók önnur eins bið við að fara í myndatöku sem var svo klukkan ellefu um kvöldið.“

Margrét segist hafa verið á biðstofunni til klukkan tvö um nóttina, á meðan hún beið eftir að fá herbergi. „Ég fékk síðan ekkert herbergi heldur fékk ég að dúsa á læknabekk frammi á gangi ásamt fjölda annarra. Þar fékk ég að sofa um nóttina.

Skoðun á mér, sem sagt taugaskoðun, fór fram á gangi fyrir framan fjölda fólks. Önnur skoðun fór fram í pínulítilli kompu þar sem varla var hægt að athafna sig.“

Starfsfólkið hljóp um gangana

Margrét Sigurðardóttir

Margrét fékk niðurstöður úr rannsóknunum síðar um nóttina, frammi á biðstofunni, fyrir framan fjölda manns.

„Klukkan níu um morguninn vakna ég, eftir að hafa farið að sofa frammi á ganginum klukkan þrjú, Mér finnst líklegast að ég hafi gleymst því maðurinn minn fór klukkan hálf tólf að leita að hjúkrunarfræðingi til að spyrja um stöðu mála hjá mér. Á meðan voru verkamenn fyrir ofan mig að vinna í loftinu, og ég lá með æðalegg í náttfötum á ganginum á læknabekk. Gamalmenni lágu úti um alla ganga í hjartalínuritum og starfsfólkið gekk ekki um gangana, heldur hlupu flestir eða gengu kraftgöngu.“

Rannsóknir leiddu í ljós að ekki var um heilablæðingu að ræða. Í samtali við DV segist Margrét sem betur fer vera á góðum batavegi í dag. Hún fékk viðeigandi sterameðferð hjá lækni á Egilsstöðum. En hún kveðst vilja vekja athygli á aðstæðum á bráðamóttökunni. Margrét tekur fram að starfsfólk bráðamóttökunnar hafi verið „dásamlegt í alla staði.“ Vinnuaðstæðurnar séu hins vegar engum bjóðandi.

„Þau voru öll dásamleg upp til hópa og ég hrósa þeim ekki nóg. Starfsfólkið var alveg útbrunnið  og maður fann alveg bugun í nokkrum þeirra.“

Margrét spyr hvort þessar aðstæður séu virkilega boðlegar fyrir starfsfólk og sjúklinga. „Ríkisstjórnin má fara að girða sig í brók og gera eitthvað í þessum málum. Ég hef lesið marga pistla um þetta og hélt stundum að þetta væru ýkjur, en það er það svo sannarlega ekki,“ segir Margrét og bætir við. „Ég vona svo innilega að ef þingmaður veikist og þurfi á þessari aðstoð að halda að hann eða hún fái enga sérmeðferð heldur fari aftast í röðina eins og við almúginn.“

Farsakennt ástand

Í samtali við Rás 2 á dögunum sagði Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækninga á Landspítalanum, ástandið á bráðamóttökunni hafa verið slæmt lengi en nú væri það orðið „farsakennt“.
„Eins og staðan er núna þá höfum við húsnæði og mannskap til að sinna þessu þannig það ætti nánast aldrei að vera bið hjá okkur. En legudeildir Landspítala hafa ekki mannskap til að taka við öllum þeim sem þurfa að leggjast inn á spítalann. Þess vegna er bara svarið, það eru engin pláss og sjúklingurinn bíður á bráðamóttöku. Meginhluti okkar deilda sem sinnir öllum alvarlegum tilfellum er með 36 rúm og það er ekkert flókin stærðfræði að þegar það er 41 einstaklingur í þeim 36 rúmum sem eru að bíða, þá er engin aðstaða til að veita fólki eðlilega bráðaþjónustu.“

Þá bætti hann við á öðrum stað: „Bráðamóttaka er almennt séð komin á kolrautt ástand ef að það eru 5 fastir þar og komast ekki á legudeild. Það er mjög slæmt. Það er búið að vera árum saman, að það hafa alltaf verið einhverjir í bið og eiginlega hefur venjan núna síðasta eitt, tvö árin að það séu 20 sjúklingar að bíða og það er sturlað ástand. Þegar þetta er komið yfir fjörtíu sjúklinga þá eiginlega skortir mig lýsingarorð til að lýsa þessu ástandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Heinze aðstoðar Arteta
Fréttir
Í gær

Maður sogaðist inn í þotuhreyfil í Mílanó – Miklar raskanir á flugi

Maður sogaðist inn í þotuhreyfil í Mílanó – Miklar raskanir á flugi
Fréttir
Í gær

Viðbrögð við vafasömu Íslandsmeti stjórnarandstöðunnar – „Orðið tímabært að ríkisstjórnin bindi enda á þennan skrípaleik“

Viðbrögð við vafasömu Íslandsmeti stjórnarandstöðunnar – „Orðið tímabært að ríkisstjórnin bindi enda á þennan skrípaleik“
Fréttir
Í gær

Sara var endurlífguð á bensínstöðvarplani – „Til stóð að skrá niður dánarstund en til allrar lukku var ákveðið að reyna aðeins lengur“

Sara var endurlífguð á bensínstöðvarplani – „Til stóð að skrá niður dánarstund en til allrar lukku var ákveðið að reyna aðeins lengur“
Fréttir
Í gær

Segir orð Jens Garðars um ermi eftir gott kökupartý ekkert grín og lýsa vanþekkingu

Segir orð Jens Garðars um ermi eftir gott kökupartý ekkert grín og lýsa vanþekkingu