fbpx
Sunnudagur 21.september 2025
Fréttir

Tvíhöfði segir Sigmund vera krakkaskít úr Garðabæ: „Ég hefði lagt hann í einelti“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 15. október 2019 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, og Sigurjón Kjartansson, leikari og handritshöfundur, sjá um útvarpsþáttinn Tvíhöfða á Rás 2.

Í síðasta þætti fjölluðu þeir félagar mikið um stjórnmál og beindu spjótum sínum að miklu leyti að Miðflokknum og Sigmundi Davíð. Hringbraut vakti athygli á þessu.

Sigurjón sagði í þættinum að Sigmundur Davíð væri krakkaskítur úr garðabænum sem hann hefði lagt í einelti ef hann hefði getað það. Auk þess var sagt að kjósendur Miðflokksins láti plata sig og þeir séu flestir búsettir á Suðurlandi. Þeir séu tannlausir, tyggjandi skro, á móti innflytjendum en trúa á Jesú.

Tvíeykið tók þó alla flokka fyrir en Jón sagðist vera hrifnastur af Framsóknarflokknum og að hann gæti alveg hugsað sér að kjósa hann. Þeir sögðu að samkvæmt könnunum á kjósendum landsins þá væru þeir sem kjósi Miðflokkinn ómenntað eldra fólk.

„Alltaf þegar ég keyri yfir Hellisheiðina og er að koma niður hjá Kömbunum, þá veit ég að ég er að keyra inn í eitthvað biblíubelti. Eins og Danir líta á Jótland. Það er verið að tyggja skro og menn eru tannlausir og menn trúa á Jesú, og eru yfirleitt ekki glaðir með innflytjendur. Og eiga pallbíl.“

Jón Gnarr segir síðan í þættinum að Sigmundur Davíð sé ekki það sem hann segist vera.

„Sigmundur Davíð, hann er alltaf að gefa sig út fyrir að vera íslenskur bóndakall, en hann er bara gæi úr Garðabæ.“

Sigurjón bendir þá á það hvað Sigmundur sé gamall.

„Hann er náttúrulega bara krakkaskítur úr Garðabæ. Hann er fæddur 1975. Þetta er fáránlegt.“

Jón Gnarr segir í kjölfarið að Sigmundur sé eldklár en Sigurjón skýtur síðan inn í.

„Maður hefði gjörsamlega, ég hefði lagt hann í einelti.“

Jón Gnarr segir þá síðar í þættinum að Sigmundur sé að reyna að þykjast vera eins og Sigurður Ingi, formaður framsóknarflokksins. Sigurjón bætti við því að kjósendur Miðflokksins ættu mikið sameiginlegt með þeim sem kjósa Donald Trump bandaríkjaforseta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Giggs segir upp störfum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu í fyrsta skipti

Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu í fyrsta skipti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dívurnar Linda Pé og Margrét Jónasar tókust á fyrir dómi – „Bið þig um að fjarlægja strax“

Dívurnar Linda Pé og Margrét Jónasar tókust á fyrir dómi – „Bið þig um að fjarlægja strax“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi heilbrigðisráðherra hæðist að kerfinu – „Væri ekki bara skilvirkast að láta grafa mig strax“

Fyrrverandi heilbrigðisráðherra hæðist að kerfinu – „Væri ekki bara skilvirkast að láta grafa mig strax“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fór ekki eftir fyrirmælum og ók á starfsmann við malbikun

Fór ekki eftir fyrirmælum og ók á starfsmann við malbikun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varað við svikahröppum sem þykjast vera heyrnarlausir

Varað við svikahröppum sem þykjast vera heyrnarlausir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hörður endurvekur Macland – „Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg“

Hörður endurvekur Macland – „Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg“