fbpx
Mánudagur 22.september 2025
Fréttir

Femínistar lofsama viðbrögð forsetans við kynferðislegri áreitni – „Ég fékk smá tár í augun“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 4. október 2019 19:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttukonan Hildur Lilliendahl táraðist af gleði yfir faglegum viðbrögðum forseta Íslands við kynferðislegri áreitni á meðal starfsliðs skrifstofu forsetaembættisins. Mikil ánægja ríkir á meðal femínista sem hafa tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum með vinnubrögð forsetans. Breytir þar engu að maðurinn sem ásakaður var um kynferðislega áreitni heldur starfi sínu.

Tvær konur sökuðu starfsmanninn um kynferðislega áreitni í vinnu- og námsferð starfsmanna til Parísar. Viðbrögð embættisins við athæfinu voru þau að maðurinn var sendur í leyfi og fékk skriflega áminningu. Úrvinnsla málsins var í samvinnu við þær konur sem höfðu ásakað manninn. Í yfirlýsingu forsetans um málið segir:

„Um leið og ég varð áskynja um það ólíðandi athæfi sem viðhaft var aflaði ég mér allra mögulegra upplýsinga, meðal annars með viðtölum við alla þá sem málið varðaði. Starfsmaðurinn fór í leyfi og forsetaritari veitti honum skriflega áminningu. Auk þess var starfsmanninum gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja.“

Í framhaldinu baðst maðurinn afsökunar á athæfi sínu og leitaði sér sérfræðiaðstoðar. Þá segir enn fremur í yfirlýsingu forsetans:

„Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfsfólk mitt ‒ hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfsmanni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum.“

Faglegt og óvenjulegt

Hildur Lilliendahl hefur þetta að segja um vinnubrögð forsetans í málinu:

„Þetta er svo fallega afdráttarlaust og svo faglegt og óvenjulegt að ég fékk smá tár í augun við lesa þessar fréttir. Öll sem þurfa að díla við svona mál ættu að taka þessi viðbrögð Forseta Íslands sér til fyrirmyndar.“

Júlía Birgis, sem vakið hefur athygli fyrir baráttu sína gegn stafrænu kynferðisofbeldi, segir einfaldlega:

„Forseti Íslands. Takið ykkur hann til fyrirmyndar!“

„Allt upp á 10“ og #minnforseti eru á meðal annarra umsagna um vinnubrögð forsetans í málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ívar þurfti að krefjast fjárnáms til að fá greiddar miskabætur frá manni sem kallaði hann veiðiþjóf – „Rétt skal vera rétt“

Ívar þurfti að krefjast fjárnáms til að fá greiddar miskabætur frá manni sem kallaði hann veiðiþjóf – „Rétt skal vera rétt“
Fréttir
Í gær

Verkalýðsfélag í Hafnarfirði segist ekki standa í neinu samsæri – „Fyrir neðan virðingu kjörinna fulltrúa“

Verkalýðsfélag í Hafnarfirði segist ekki standa í neinu samsæri – „Fyrir neðan virðingu kjörinna fulltrúa“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljóst að hræðilegir atburðir áttu sér stað á heimili unga drengsins í Hafnarfirði

Ljóst að hræðilegir atburðir áttu sér stað á heimili unga drengsins í Hafnarfirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir foreldra horfa til Langanesbyggðar í leit að kyrrð og ró

Segir foreldra horfa til Langanesbyggðar í leit að kyrrð og ró
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmaður Miðflokksins vill gera þessa tilraun áður en splæst er í „dýrustu samgönguframkvæmd Íslandssögunnar“

Þingmaður Miðflokksins vill gera þessa tilraun áður en splæst er í „dýrustu samgönguframkvæmd Íslandssögunnar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vinkonur á sjötugsaldri lentu í rifrildi á Benidorm – Sú eldri lifði það ekki af

Vinkonur á sjötugsaldri lentu í rifrildi á Benidorm – Sú eldri lifði það ekki af