fbpx
Föstudagur 18.júlí 2025
Fréttir

Þyrlan kölluð út vegna báts í vanda á Bakkaflóa

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 2. október 2019 16:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð klukkan 15:46 frá skipstjóra fimm tonna fiskibáts á Bakkaflóa eftir að leki kom að bátnum.  Einn var um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út auk þess sem skip í grenndinni voru beðin um að halda á staðinn. Þá var björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, frá Vopnafirði kallað út sem og sjóbjörgunarsveitir á svæðinu.

Klukkan 16:30 kom nálægur bátur að fiskibátnum og var það álit skipstjóranna að hægt væri að taka fiskibátinn í tog og draga inn til Bakkafjarðar. Lensidæla bátsins hefur undan meðan bátnum er ekki siglt undir eigin vélarafli. Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson og harðbotna björgunarbátur frá Þórshöfn halda för sinni áfram að bátnum en þyrlu Landhelgisgæslunnar hefur verið snúið við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sláandi vendingar í Air India-slysinu: „Við teljum að þetta hafi verið sjálfsvíg flugstjórans“

Sláandi vendingar í Air India-slysinu: „Við teljum að þetta hafi verið sjálfsvíg flugstjórans“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Átta börn fædd með erfðaefni frá þremur – Laus við hættulega erfðasjúkdóma

Átta börn fædd með erfðaefni frá þremur – Laus við hættulega erfðasjúkdóma
Fréttir
Í gær

Ísland á nafnið Iceland – Breska verslunarkeðjan tapaði

Ísland á nafnið Iceland – Breska verslunarkeðjan tapaði
Fréttir
Í gær

Ragnhildur segir samfélagsmiðla auka á kvíða fólks – „Ég er með þá reglu að eftir kvöldmat er bara enginn sími“

Ragnhildur segir samfélagsmiðla auka á kvíða fólks – „Ég er með þá reglu að eftir kvöldmat er bara enginn sími“