fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
Fréttir

Jón Valur skrifar ávarp til Pence: „Við erum kristileg þjóð sem deilir kristinni trú með þér, yðar hágöfgi“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 4. september 2019 15:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Koma Mike Pence til landsins hefur án efa ekki farið framhjá neinum en fjöldinn allur af Íslendingum hafa tjáð sig um heimsókn hans til landsins. 

Nú hefur annar víðfrægur Íslendingur bæst í hóp þeirra sem tjá sig um varaforsetann og er það enginn annar en Jón Valur Jensson, guðfræðingur og bloggari. Hann er hæst ánægður með komu Pence til landsins og skrifar til hans á bloggsíðunni „Kristin Stjórnmálasamtök“.

Hann deilir bloggfærslunni í Facebook-hópinn Stjórnmálaspjallið en þar segist hann vona að ávarpið sitt sé sem ólíkast því sem mótmælendur segja.

„Ég vona að hljómurinn í þessu ávarpi mínu til varaforseta Bandaríkjanna sé sem ólíkastur þeim óhljóðum sem nú eru líkleg til að berast frá Austurvelli.“

Jón Valur byrjar ávarpið á að tala um þá aldagömlu tengingu sem er á milli Íslands og Bandaríkjanna.

„Þjóðir okkar hafa verið afar nánar síðan árið 1941, Íslendingar hafa notið ókeypis hernaðarverndar síðan þá auk hinnar mikilvægu Marshall-aðstoðar eftir seinni heimsstyrjöldina. Löngu fyrir það, á 19. öld, fluttust margir Íslendingar til Bandaríkjanna og lifa afkomendur þeirra þar í dag.

Síðan talar hann um Leif Eiríksson en svo virðist vera sem Jón Valur telji að Kristófer Kólumbus hafi fengið upplýsingarnar um Ameríku úr íslendingasögunum.

„Síðan á 10. öld, þá voru Íslendingar eins og Bjarni Herjólfsson og Leifur Eiríksson mættir til Bandaríkjanna. Það var löngu fyrir daga Kristófers Kólumbusar, sem þá hafði ferðast til norður-Evrópu og orðið var við íslendingasögur um Íslendinga og Grænlendinga sem fluttust til Ameríku.“

Hann segir íslensku þjóðina vera umhyggjusama þegar kemur að ófæddum börnum og segir þau hafa undanfarið orðið fyrir banvænum árásum frá öfga-vinstrifólki.

„Við erum ennþá, allavega mörg okkar, sem betur fer kristileg þjóð sem deilir kristinni trú með þér, yðar hágöfgi. Við deilum með þér umhyggju um hina ófæddu borgara, sem hafa undanfarið orðið fyrir fjandsamlegum og banvænum árásum frá öfga-vinstrifólki og veraldarhyggjumönnum síðan hinn blóðþyrsti Bolshevik Lenin kynnti fyrstu fóstureyðingarlögin til sögunnar.“

Að lokum segir Jón Valur að Pence eigi ekki að vera sár yfir mótmælum frá Íslendingum, þeir tali ekki fyrir alla þjóðina.

„Megi heimsókn þín vera sú ánægjulegasta, og herra varaforseti, þú skalt alls ekki vera sár yfir einhverjum mótmælum frá jaðarsettum og ný-róttækum hópum. Þeir tala ekki fyrir alla þjóðina!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rýnt í grein varaþingmanns um meintan feluleik – Hálfsannleikur, talnaleikir og fullyrðingar sem halda engu vatni

Rýnt í grein varaþingmanns um meintan feluleik – Hálfsannleikur, talnaleikir og fullyrðingar sem halda engu vatni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Slanga í flugvél – „Ég hafði eitt tækifæri til þess að grípa hana“

Slanga í flugvél – „Ég hafði eitt tækifæri til þess að grípa hana“
Fréttir
Í gær

Hátt verð fyrir hótelgistingu á Suðausturlandi vekur reiði – „Þetta er orðin ógeðsleg menning“

Hátt verð fyrir hótelgistingu á Suðausturlandi vekur reiði – „Þetta er orðin ógeðsleg menning“
Fréttir
Í gær

Kvartaði undan erlendum ferðamönnum á tjaldsvæðum og fékk hvasst svar – „Að lesa þetta er kostulegt“

Kvartaði undan erlendum ferðamönnum á tjaldsvæðum og fékk hvasst svar – „Að lesa þetta er kostulegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dóra og Einar tókust hart á – „Það þurfti að sprengja meirihlutann til að gera það“

Dóra og Einar tókust hart á – „Það þurfti að sprengja meirihlutann til að gera það“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Okur í íslensku bakaríi – „Bon apetit bankareikningurinn minn“

Okur í íslensku bakaríi – „Bon apetit bankareikningurinn minn“