fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Fréttir

„Í síðustu viku voru foreldrar mínir full tilhlökkunar að flytja inn í nýju íbúðina sína. Í dag eru þau brotin og húsnæðislaus“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 5. ágúst 2019 17:10

Mynd úr safni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í síðustu viku voru foreldrar mínir full tilhlökkunar að flytja inn í nýju íbúðina sína. Í dag eru þau brotin og húsnæðislaus,“ svona hefst aðsend grein Hrefnu Lindar Ásgeirsdóttur, hugbúnaðarsérfræðings, sem birtist á Vísi í gær.

Foreldrar Hrefnu festu sér kaup á íbúð í Árskógum sem Félag eldri borgara byggði fyrir félagsmenn sína. Greint hefur verið frá því undanfarna daga að kostnaður vegna byggingar íbúðanna hafi reynst mun meiri en áætlanir gerðu upphaflega ráð fyrir. Foreldrar Hrefnu eru með þinglýstan kaupsamning, en fá þó ekki íbúð sína afhenta nema samþykkja 6 milljón króna hækkun á kaupverði.

Neita að afhenda lykla

Daginn eftir að foreldrar Hrefnu áttu að taka við íbúðinni samkvæmt kaupsamningi voru þau boðuð á fund og þeim tilkynnt að vegna þessa auka kostnaðar þá þyrftu þau að samþykkja rúmlega 6 milljón króna hækkun á kaupverðinu til að fá lyklana afhenda og ef þau samþykktu ekki hækkunina þá þyrftu þau að falla frá kaupunum.

Upphaflega áttu foreldrar Hrefnu að fá afhent í júní. En afhendingunni var seinkað.

„Eftir ítrekaðar tilraunir til að fá svör um afhendingu fengu þau loks boð á fund, degi eftir að þau áttu að fá íbúðina afhenta í síðasta lagi samkvæmt kaupsamningi. Þegar fasteignasalinn var spurður hvort að lyklarnir yrðu afhenti sagði hún að svo yrði með ákveðnum skilyrðum án þess þó að vilja tilgreina hver þau skilyrði væru.“

Engin viðvörun fyrir fundinn

Hrefna segir ljóst að þarna hafi fasteignasalinn vitað vel hverjar aðstæður voru. En ekki varaði hann þó foreldra hennar við og mættu þau grunlaus á fundinn með engan lögfróðan sér til aðstoðar.

Á fundinum var þeim sagt að kostnaður hefði farið mikið fram úr áætlunum, eða um 400 milljónum krónum. Þetta hefði gerst vegna mistaka við útreikning á fjármagnskostnaði og vísitölutengingu. Því þyrftu kaupendur fasteignanna að taka á sig þennan umfram kostnað.

Á fundinum var viðurkennt að kaupendur hefði lagalega réttinn sín megin, en engu að síður fengju foreldrar Hrefnu ekki afhent án aukagreiðslu.

„Það hafa engin gögn eða útreikningar verið lagðir fram til að varpa ljósi á hvernig þessi 400 milljón króna aukakostnaður er til kominn og hvort að sú upphæð dugi til að bjarga félaginu frá gjaldþroti. Hvað gerist ef sumir kaupenda samþykkja hækkun kaupverðsins en aðrir ekki? Mun félagið samt sem áður fara í þrot?“

Heimilislaus á efri árum

Foreldrum Hrefnu var greint frá því að fasteignasala og Landsbankinn gætu aðstoðað félagsmenn við fjármögnun, en engar nánari upplýsingar um með hvaða hætti slíkt yrði gert. Jafnframt var þeim sagt að Félag eldri borgara muni hefja viðræður við aðra hagsmunaaðila í verkefninu og freista þess að lækka kostnaðinn, en sá ábati myndi skila sér tli kaupenda. Hins vegar fengu þau engar upplýsingar um hvaða leiðir yrði farið í þeim efnum eða hvenær slíkur ábati gæti skilað sér.

„Foreldrar mínir voru að kaupa sér griðastað til að eyða elliárum sínum. Í stað þess að vera að koma sér fyrir í nýju íbúðinni sinni sofa þau á dýnu í herbergi barnabarna sinna og búslóðin þeirra í geymslu. Foreldrar mínir eru heiðarlegt fólk, hafa alla tíð staðið sína plikt í lífinu og vilja engum illt. Er til of mikið ætlast að aðrir sem koma að þessu máli komi fram af heiðarleika og standi við sína samninga? Það vill enginn standa í málaferlum eða leiðindum á sínum efri árum.“

Íhuga að leita réttar síns

Gífurleg óánægja er meðal kaupenda í Árskógum vegna þessa máls og samkvæmt heimildum mbl.is er nú íhugað að höfða hópmálsókn á hendur Félagi eldri borgar. Í samtali við mbl.is um helgina sagði Sigurður Helgi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins, að kaupverð samkvæmt kaupsamningi sé bindandi og sé það því seljanda að bera kostnaðarauka.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slagsmál á ströndinni eftir að rússneskt lag var spilað – Sjáðu myndbandið

Slagsmál á ströndinni eftir að rússneskt lag var spilað – Sjáðu myndbandið