Elsa Valdís Írisardóttir hvetur Íslendinga til að vera vakandi og örlítið hjálpsamari í umferðinni, en hún lenti í því óláni að bíll hennar bilaði í Kömbunum og enginn gaf sér tíma til að aðstoða hana.
Þetta skrifar hún í opinni færslu á Facebook.
„Varð fyrir því óláni að bíllinn minn bilaði á mjög svo fljótförnum vegi (Kömbunum), var heppin að ná bílnum út í kant en bíllinn var þó ennþá hálfur út á veginum.“
Þar beið Elsa drykklanga stund og á meðan keyrði fjöldi bíla framhjá henni án þess að hægja á sér, og án þess að bjóða fram aðstoð.
„Engum datt í hug að stoppa þó svo ég stæði grenjandi úr stressi um að einhver af þessum bílnum myndi enda á okkur og veifaði og veifaði eftir aðstoð. Fólk veifaði til baka og aðrir flautuðu á mig líkt og ég væri að þessu að gamni mínu.“
Elsa Valdís segist vera í sjokki eftir atvikið. En þó fór allt vel að lokum. Hún fékk aðstoð lögreglumanns sem sagðist sjálfum blöskra ökulag margra.
Svo aðstoðaði lögregla Elsu og tvö ung börn hennar að húkka sér far.
„Ég bara get ekki setið á mér, ég er svo hissa. Endilega deilið og verum meira vakandi og örlítið hjálpsamari í umferðinni. Tala nú ekki um á svona vegum landsins og bara alltaf.“
Færslu Elsu má lesa í heild sinni hér að neðan