Skúli Gunnar Sigfússon, gjarnan kenndur við Subway, segir í stöðufærslu á Facebook að á sama tíma og Sveinn Andri Sveinsson lögmaður fái ofurlaun sem skiptastjóri WOW air þá eyði hann tíma og peningum í vandræðalegan viðskiptafarsa, líkt og lýsir mögulegum kaupum bandarísku kaupsýslukonunnar Michele Ballarin á eignum úr þrotabúi flugfélagsins.
„Sem kröfuhafi í þrotabú Wow air tek ég undir orð þeirra kröfuhafa sem fréttastofa ræddi við. Skiptastjórar Wow air eru búnir að eyða dýrmætum tíma og fjármunum búsins í einn vandræðalegasta viðskiptafarsa sem almenningur hefur orðið vitni að síðari ár. Ég vek athygli á því, líkt og ég hef reyndar gert áður, að Sveinn Andri Sveinsson rukkar 49.600 kr. fyrir hverja klukkustund sem hann vinnur, eða segist vinna, við þrotabú,“ skrifar Skúli og vísar til fréttar Vísis um að kröfuhafar í þrotabú WOW séu æfir yfir vinnubrögðum Sveins Andra.
Skúli segir Svein Andra hafi eytt dýrmætum tíma í vitleysu. „Sveinn Andri fullyrti í forsíðufrétt í Fréttablaðinu þann 12. júlí að búið væri að greiða kaupverðið að fullu. Hvorki hann né Þorsteinn Einarsson hafa leiðrétt þá rangfærslu en þeim hefði verið báðum í lófa lagið að leiðrétta það strax. Ábyrgð skiptastjóranna er því mikil. Ljóst er að “viðskiptin” eiga sér aðdraganda og því hefur mörgum dýrmætum vikum og fjármunum verið sóað auk þess sem almenningur og kröfuhafar hafa verið hafðir að fíflum. Aðrir kaupendur, þ.m.t. svokallaður WAB hópur, fengu þau skilaboð eins og almenningur, að búið væri að selja þessar eignir og fóru því frá borðinu. Samningsstaða þeirra og annarra kaupenda er nú mun sterkari en áður og líklegt að þeir fái búið á lægra verði eftir þetta fíaskó skiptastjóranna,“ segir Skúli.
Hann segist hafa séð strax að ekki var allt með felldu. „Það tók mig um 2-3 mínútur að finna út að ekki væri allt með felldu varðandi þessi viðskipti um leið og þau voru tilkynnt. Það er til sniðugt leitarforrit sem heitir Google og leitar að ótrúlegustu upplýsingum um t.d. fólk og fyrirtæki. Þetta forrit fann ekkert um þennan viðskiptajöfur frá Bandaríkjunum né fyrirtæki hennar USAerospace nema eitthvert bull tengt stríðsherrum og sjóræningjum í Sómalíu. Fyrirtæki hennar USAerospace átti að vera á Dulles flugvelli en það eina sem kemur upp er samnefnt lítið viðhaldsfyrirtæki í flugi í Tennessee. Sama á við um forsvarsmenn þessa fyrirtækis, sem hið alsjáandi auga Google gat samt ekki séð. Um leið og ég gúglaði t.d. Charles Celli, sem átti að hafa verið forstjóri Gulfstream, kom í ljós að hann var í fyrsta lagi aldrei forstjóri Gulfstream og í öðru lagi minnist hann sjálfur ekkert á að hann sé forstjóri þessa USAerospace fyrirtækis Ballarin á Linkedin síðu sinni. Skiptastjórum WOW bar skylda til að athuga trúverðugleika þessarar konu strax í byrjun áður en þeir eyddu tíma og fjármunum búsins í að setja á fót einhver sýndarviðskipti. Það hefði tekið þá nokkrar mínútur, líkt og það tók mig,“ skrifar Skúli.
Hann segir að Sveinn Andri og lögmaður Ballarin, Páll Ágúst Ólafsson, deila skrifstofu og telur ástæðu til að það sé rannsakað. „Hlutabréf í Icelandair féllu um 7% í kjölfar fréttarinnar um kaupin. FME hlýtur að skoða hvort að einhver óeðlileg kaup eða sala á bréfum hafi átt sér stað fyrir eða eftir þessa „falsfrétt,“ þ.m.t. skortsala. Það er dýrmætt að búa yfir upplýsingum um hvenær hlutabréfaverð skráðs félags muni lækka við ákveðna frétt, eða hækka aftur. Sveinn Andri og lögmaður Ballarin, Páll Ágúst Ólafsson, deila lítilli skrifstofu í Grjótagötu 7. Ástæða er til að skoða hver tengsl þeirra voru í þessum viðskiptum. Hefur Páll fengið eitthvað greitt frá Ballarin vegna þessara viðskipta og hefur Sveinn Andri fengið einhverja þóknun frá Páli tengt því að koma þessum „kaupum“ á eða fyrir aðra þjónustu?,“ spyr Skúli.
Hann segist vilja fá nýjan skiptastjóra undir eins. „Þorsteinn Einarsson þarf einnig að gera hreint fyrir sínum dyrum. Af hverju steig hann ekki strax fram og leiðrétti þá fullyrðingu að kaupverðið væri greitt „að fullu“? Hans ábyrgð er jöfn ábyrgð Sveins Andra, enda bar honum að setja hag kröfuhafa fremst og leiðrétta strax rangfærslur félaga síns um viðskipti tengd búinu. Þessa skiptastjóra þarf að setja af strax og skipa hæfa einstaklinga til að sinna þessu mikilvæga verkefni, t.d. einn heiðvirðan lögmann og einn endurskoðanda.. Héraðsdómur Reykjavíkur ætti að sjá sóma sinn í að skipa konur til tilbreytingar en sagan sýnir að miðaldra karlar hafa verið í sérstöku uppáhaldi hjá dóminum undanfarin ár þegar kemur að skipan skiptastjóra í feitum þrotabúum.“