fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Kjarvalsmál enn fyrir dómi: Segir afa sinn hafa verið sviptan sjálfræði og lokaðan inni á geðdeild

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 24. júlí 2019 15:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áreiðanleiki dagbóka sem eiga að sanna að Jóhannes Kjarval listmálari hafi gefið Reykjavíkurborg málverk sín er enn og aftur fyrir dómi. Jóhannes Kjarval er þekktasti listmálari Íslandssögunnar og Kjarvalsstaðir bera hans. Það listasafn var tekið í notkun árið 1973, ári eftir lát meistarans, og eru reglulega haldnast sýningar á verkum hans í safninu. Það starf byggist á gjöf Kjarvals til Reykjavíkurborgar en hann á að hafa gefið borginni öll sín verk árið 1968. Fjölskylda Kjarvals hefur véfengt gjöfina og barnabarn hans, Ingimundur Kjarval, heldur því fram að dagbækur Guðmundar Alfreðssonar sem eiga að staðfesta vilja Kjarvals séu skrifaðar árið 1982, tíu árum eftir dauða Kjarvals, en ekki 1968, eins og gengið hefur verið út frá.

Fjölskyldan tapaði dómsmáli vegna þessa fyrir nokkrum árum, bæði í héraðsdómi og hæstarétti. Núna er málið hins vegar að nýju fyrir héraðsdómi en snýst núna um kröfu þess efnis að nýr matsmaður verði skipaður til að kanna aldur dagbókanna.

Kjarval sviptur sjálfræði og lokaður inni á geðdeild:

Ingimundur Kjarval fer yfir málið í grein í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann gjöfina frá Kjarval hafa verið gefna munnlega og án nokkurra skriflegra gagna en dagbækurnar hafa verið álitnar sönnun gjafarinnar, en forsenda þess sönnunargildis er að dagbækurnar væru samtímaheimild:

„Dagbókarbrotin sem meint samtímagögn sögð sönnun þess að Jóhannes Kjarval listmálari, afi minn, hefði haustið 1968 gefið Reykjavíkurborg munnlega og leynilega, án skriflegra gagna allt sitt örfáum vikum áður en hann var sviptur sjálfræði og lokaður inni á geðdeild Borgarspítalans þar sem hann lést svo nokkrum árum seinna.“

Ingimundur segir að dagbókarbrotin hefðu í raun aldrei átt að vera notuð sem sönnun þess að Kjarval hafi gefið borginni verkin. Spurningin um aldur dagbókarskrifanna sé hins vegar tilefni lögreglurannsóknar:

„Auðvitað skiptir máli hvort dagbókarbrotin voru gerð 1968 eða 1982, en lögreglumál að mínum dómi og á að rannsakast á þeim grundvelli, ekki rétt að ég eigi að standa undir þeim kostnaði. Einnig að með ásökun Reykjavíkurborgar að ég hafi falsað mín gögn sé það borgarinnar að sanna að dagbókarbrotin voru gerð 1968 og hennar að standa undir þeim kostnaði, staðreynd að þau komu fyrst fram 1982 hjá Reykjavíkurborg.“ 

Þess má geta að Ingimundur heldur því jafnframt fram í bloggi frá árinu 2013 að vinnustofa Jóhannesar Kjarvals afa hans hafi verið tæmd af Reykjavíkurborg tveimur mánuðum áður en hann var sviptur sjálfræði og lokaður inni á geðspítala.

Ítrekað skal að bæði héraðsdómur og hæstiréttur hafa dæmt Reykjavíkurborg í hag í þessu máli og Mannréttindadómstóll Evrópu vísað því frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“