fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fréttir

Barnabrú: Samstöðuaðgerð með flóttabörnum á göngubrúnni yfir Hringbraut

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 6. júlí 2019 12:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Boðað hefur verið til samstöðuaðgerðar með flóttabörnum á brúnni yfir Hringbraut í Reykjavík á sunnudag kl. 14. Er fólk hvatt til að mæta með létt barnaföt, blöðrur, tuskudýr og önnur létt leikföng sem fest verða á snúru sem strengd verður yfir handrið göngubrúarinnar.

Í tilkynningu frá hópnum sem stendur að aðgerðinni segir:

Síðustu daga hafa mörg þúsund manns lýst andstöðu við ákvörðun um að reka fjögur börn úr landi. Þar sem þessi tilteknu börn hafa eignast vini á Íslandi, sem eru tilbúnir til að tala máli þeirra, hafa viðbrögð almennings og umfjöllun fjölmiðla orðið nógu áberandi til að dómsmálaráðherra ákvað að opna á möguleika á endurskoðun. En sú ákvörðun merkir ekki að börn hælisleitenda séu örugg á Íslandi. Þau börn sem ekki eiga vini á Íslandi verða áfram rekin úr landi, rétt eins og þau hundruð barna sem á síðusu árum hafa verið rifin upp úr rúmi og send nauðug úr landi í lögreglufylgd í skjóli nætur. Áfangastaður margra þeirra er Grikkland en þar bíður þeirra heimilisleysi og sárafátækt. Mörg þeirra barna sem yfirvöld hafa sett á guð og gaddinn hafa þegar þjáðst af meira öryggisleysi en meðalmaðurinn á Íslandi upplifir á heilli mannsævi.

Það er ekki boðlegt að senda flóttafólk til Grikklands og allra síst börn.

Samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna skal „[þ]að sem barni er fyrir bestu […] ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.“  Þetta hafa ríkisstjórnir Íslands og stjórnsýslustofnanir haft að engu þegar börn flóttafólks eru annars vegar. 

Í tilkynningunni er jafnframt bent á að krafan um vernd flóttabarna snúist ekki bara um þessi fjögur börn sem hafa verið í fréttum  undanfarið:

Hún snýst um mannsæmandi uppeldisaðstæður fyrir öll börn. Hún snýst um ábyrgð ríkisins á mannúðlegri meðferð á öllum börnum sem stödd eru í íslenskri lögsögu, ekki bara þeim sem eiga íslenska vini. Við ætlum ekki að láta ráðamenn komast upp með að virða skyldu sína gagnvart fjórum börnum, í þeim eina tilgangi að þagga niður gagnrýnisraddir, og halda síðan uppteknum hætti. Við munum því ekki þagna út á heimild – en ekki skyldu – til þess að taka mál til meðferðar. Við tökum ekki mark á þeirri réttarbót sem á að felast í því að skipa eina nefndina enn.  Blandaður aðgerðahópur samtaka og einstaklinga efnir því til samstöðuaðgerðar með flóttabörnum á göngubrúnni yfir Hringbraut, sunnudaginn 7. júlí kl 14.  Við ætlum að gera flóttabörn sýnileg með því að þræða barnafatnað upp á snúru og strengja hana yfir handriðið á göngubrúnni.

Brýnt er fyrir væntanlegum þátttakendum í aðgerðinni að hengja ekki sjálfir föt og hluti á snúruna heldur láta skipuleggjendur aðgerðarinnar gera það.

Sjá Facebook-síðu viðburðarins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir eldri borgara flýja Reykjavík vegna bílastæðaskorts

Segir eldri borgara flýja Reykjavík vegna bílastæðaskorts
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristinn Örn lést vegna hitaslags á Spáni – „Strákurinn sem gaf ljós og gleði alls staðar þar sem hann kom“

Kristinn Örn lést vegna hitaslags á Spáni – „Strákurinn sem gaf ljós og gleði alls staðar þar sem hann kom“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hillary Clinton ætlar að tilnefna Trump til friðarverðlauna Nóbels að uppfylltum ákveðnum skilyrðum

Hillary Clinton ætlar að tilnefna Trump til friðarverðlauna Nóbels að uppfylltum ákveðnum skilyrðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bílabúð Benna lækkar verð á nýjum bílum

Bílabúð Benna lækkar verð á nýjum bílum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar á Þórshöfn kvarta sáran undan hávaða og mengun – „Ég get ekki sætt mig við það að þetta sé komið til að vera svona í framtíðinni“

Íbúar á Þórshöfn kvarta sáran undan hávaða og mengun – „Ég get ekki sætt mig við það að þetta sé komið til að vera svona í framtíðinni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði er starfsmaður Múlaborgar

Hinn grunaði er starfsmaður Múlaborgar