fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Efling stefnir Mönnum í Vinnu og Eldum rétt: „Þetta er bara út í hött“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. júlí 2019 12:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Starfsmannaleigur eru eitt af ömurlegum börnum hins ægilega „frelsis“ og óheftrar gróðadýrkunar sem fengið hafa að unga út afkvæmum um alla veröld, gróðasjúkum til skemmtunnar og yndisauka og öllum öðrum til erfiðleika og ama,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar í færslu sem hún birti á Facebook. Tilefni skrifanna er málsókn á hendur starfsmannaleigunnar Menn í Vinnu og fyrirtækisins Eldum rétt, vegna starfa Rúmena sem voru í meintri nauðungarvinnu hjá starfsmannaleigunni og mikið var fjallað um í vetur.

„Alþjóðavæðing á forsendum kapítalista gerir það að verkum að alltaf er hægt að sækja vinnuafl á meiri afsláttarverði en boðið er upp á í heimalandinu og við útsöluverðið bætist svo við enn meiri „afsláttur“ fólginn í því að hægt er að koma klónum í fólk sem talar ekki tungumál landsins sem það er flutt til og hefur oft mjög takmarkaða eða jafnvel enga ensku-kunnáttu, og nákvæmlega enga þekkingu á þeim lögum og reglum sem gilda um kjör og aðbúnað vinnuaflsins. “

Sólveig segir að starfsmannaleigur valdi því að verð á vinnuafli sé haldið niður og þar sem sé samningastaða verkafólks í landinu veikt mikið. „Af hverju ættu eigendur atvinnutækjanna að borga góð laun fyrir unna vinnu ef þeir hafa ávallt aðgang að höndum sem tekið geta að sér verkin fyrir léleg laun?“

„Það eru mörg vandamál sem snúa að okkur sem vinnum vinnuna og höfum ekkert til að selja nema eigin vinnuafl, vandamál útbúin af sérstöku skeytingarleysi þeirra sem öllu ráða, eignastéttinni og margt sem við þurfum að berjast fyrir að breytist í samfélaginu. Og það að fyrirtæki eins og Eldum rétt geti eins og ekkert séð leitað til algjörlega forherts fólks eins og Manna í vinnu er að mínu mati eitt af þeim vandamálum, vandamál sem við getum staðið saman í að uppræta.“

Eldum rétt ábyrgt vegna keðjuábyrgðar

Eldum rétt hefur verið stefnt á grundvelli keðjuábyrgðar notendafyrirtækja starfsmannaleiga, en sú ábyrgð byggir á því að notendafyrirtæki þurfi að bera ábyrgð á kjörum starfsmanna sem þeir taka á leigu. Slík ábyrgð á að tryggja það að fyrirtæki geti ekki notfært sér starfsmannaleigur til að fá starfsfólk á óeðlilega hagstæðum kjörum, það er starfsmenn sem þurfi að greiða langtum minna fyrir heldur en ef starfsmaður væri ráðinn beint inn af hinum almenna vinnumarkaði.

Eldum rétt hefur mótmælt öllum kröfum Eflingar. Í samtali við Stundina sagði framkvæmdastjóri Eldum rétt, Kristófer Júlíus Leifsson að kröfur Rúmenanna hafi komið honum á óvart.

„Við erum alveg til í að gera allt sem gera þarf til að gera upp við þá. Við buðum mönnunum að koma í fullt starf hjá okkur þegar þetta mál kom upp. Við höfðum spurt þá áður hvort allt væri í lagi og fengum engin svör önnur en að svo væri. Við vissum að ef það yrði eitthvað vesen myndum við tryggja að þeir fengju sín laun. málið er bar aað enginn hefur talað við okkur beint. Við fáum bara bréf frá lögfræðingum þar sem við erum beðin um að greiða starfsmönnum fyrir alla liði sem voru teknir af þeim“

Liðirnir sem voru teknir af Rúmenunum voru frádráttarliðir á borð við kostnað vegna flugmiða til og frá Íslandi, leiga, bílaleigubíll, líkamsræktarkort, fyrirframgreidd laun og orlof. Kristófer bendir á í samtali við Stundina að starfsmennirnir umræddu hafi aðeins unnið  hjá þeim í fjóra daga.

Segir kröfurnar ósanngjarnar og ósannaðar

„Ef þeir fengu raunverulega fyrirframgreidd laun, af hverju erum við þá ða greiða 200 þúsund kall á haus og fleiri hundruð þúsund í lögfræðikostnað fyrir starsfmenn sem unnu bara fjóra daga hjá okkur að meðaltali á þessu tveggja vikna tímabili sem verið er að krefja okkur um. […] Ég skil enn ekki  hvað er rétt og hvað er rangt í þessu ef ég á að vera alveg hreinskilinn. […] Við erum ekki að fara að borga þeim eitthvað aftur sem það fékk, og einhvern lögfræðikostnað og miskabætur, þetta er bara út í hött,“ segir Kristófer og bætir við að verið sé að krefja Eldum rét um flugmiða og fyrriframgreidd laun án þess að sýnt sé fram á að þeir hafi aldrei fengið þessi fyrirframgreiddulaun greidd. „Það hefur enginn sýnt fram á að það sé ólöglegt að draga af þeim, af fyrsta launaseðli, flugmiða til landsins. Það var upphaflega samið um að það væri partur af þessu samkomulagi og við vitum ekki betur en að Vinnumálastofnun hafi skrifað upp á að þetta væri allt í lagi.“

Samkvæmt lögum um starfsmannaleigur nær keðjuábyrgðin ekki til notendafyrirtækja þar sem starfsmenn hafa unnið skemur en í 10 virka daga á 12 mánaða tímabili.

Samkvæmt tilkynningu á vef Eflingar er Eldum rétt eina notendafyrirtæki Manna í Vinnu sem hefur hafnað kröfum Eflingar. Stefnufjárhæð byggist að mestu á meintum ólöglegum frádráttarliðum auk lögfræðkostnaðar og skaðabóta. Eiginleg vangoldin laun munu vera undir 10 þúsund krónum eða engin.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust