Karlmaður á þrítugsaldri var á föstudaginn dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni í Héraðsdómi Vesturlands.
Í júlí á síðasta ári barst lögreglu tilkynning frá félagsráðgjafa og barnaverndarfulltrúa um að 13 ára stúlka væri stödd á slysamóttöku. Var stúlkan verulega ölvuð og mögulega undir áhrifum annarra efna. Hefði hún greint frá því að hún hefði verið misnotuð.
Maðurinn sem misnotaði hana var fyrrverandi þjálfari hennar í ótilgrendri íþrótt. Hafði stofnast til vinskapar með þeim, þrátt fyrir að foreldrar stúlkunnar væru því mótfallnir sökum aldursmunar, en hann var þá 22 ára gamall.
Brotaþoli greindi frá því að kvöldið sem brotið hafi átt sér stað hafi maðurinn gefið henni eiturlyf og áfengi. Svo hefði hann farið með hana niður að sjó þar sem hann fjarlægði föt þeirra beggja og braut á henni.
Við rannsókn á síma mannsins fundust tvö myndskeið af kynferðismökunum og játaði hann að hafa tekið þau upp án þess að afla til þess leyfis.
Maðurinn héld því fram fyrir dómi að hann hefði ekki vitað um aldur stúlkunnar, hann hefði talið að hún væri mun eldri en hún í rauninni var.
Dómari kveð þá staðhæfingu mannsins, að hann hefði ekki vitað um eiginlegan aldur stúlkuna, ótrúverðuga.
„Þá hefði hann sérstaklega óskað henni til hamingju með þrettán ára afmælið, auk þess sem hann hefði alltaf verið að tala um hvað það væri skrýtið hvað hún væri ung því að hún liti út fyrir að vera eldri miðað við líkamlegan þroska. […] Faðirinn hefði í tvígang rætt við ákærða og varað við frekari samskiptum við brotaþola þar sem hún væri einungis 12 ára gömul.“
Ákærði hefði sjálfu kannast við viðvaranir föðurins, sem og kannaðist við að hafa þjálfað stúlkuna þegar hún var í barnaflokk.
„Þykir hafið yfir skynsamlegan vafa að honum hafi verið kunnugt um aldur stúlkunnar í greint sinn eða að minnsta kosti að hún væri undir 15 ára aldri.“
Var maðurinn dæmdur líkt áður segir, í þriggja ára fangelsi en auk þess var honum gert að greiða stúlkunni 1,2 milljónir í miskabætur.