fbpx
Miðvikudagur 03.september 2025
Fréttir

Stefán Einar segir Þórð Snæ hræsnara: „Honum finnst allir fífl nema hann sjálfur“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 7. júní 2019 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, hjólar í Þórð Snæ Júlíusson á Facebook-síðu sinni. Stefán er ósáttur við gagnrýni Þórðar á frétt Morgunblaðsins um hælisleitanda sem safnaði sýru úr rafgeymi. Þórður hefur skrifað pistil þar sem hann gefur í skyn að fréttin hafi verið skrifuð af annarlegum hvötum.

„Skoðanabloggið Kjarninn hefur nú lýst því yfir að fjölmiðlar megi ekki flytja tilteknar fréttir – þær standast nefnilega ekki pólitískan rétttrúnað forsvarsmanns vefsins. Sérfræðingurinn sá lýsti því reyndar yfir að það væri ekki ólöglegt að safna sýru úr rafgeymum bifreiða – en gleymdi því reyndar að þar var maðurinn sem í hlut átti ekki að gera það við rafgeyma úr eigin bílum heldur annarra. Hann var því að minnsta kosti þjófur, en líkast til í leiðangri sem endað hefði getað með skelfingu fyrir einhvern allt annan en hann sjálfan?,“ spyr Stefán Einar.

Hann gefur sterklega í skyn að Þórður Snær sé hræsnari. „Alvöru fjölmiðlar verða að vara sig á rausi af þessu tagi sem er aðeins gert til þess að klína ógeðfelldum stimplum á fólk. Þórður Snær hefur lengi verið með Morgunblaðið á heilanum en á sama tíma hefur hann þegið fjármagn frá mönnum sem helst hafa orðið frægir fyrir að eiga reikninga og fé á aflandseyjum. Hann gagnrýnir fréttablaðið fyrir að dreifa blöðum frítt um borg og bí en finnst ekkert tiltökumál að gera það sjálfur undir merkjum Mannlífs. Honum finnst allir fífl nema hann sjálfur,“ skrifar Stefán Einar.

Pistil Þórðar um sýrumálið má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Trump birti myndband af því þegar ellefu fíkniefnasmyglarar voru sprengdir í loft upp

Trump birti myndband af því þegar ellefu fíkniefnasmyglarar voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Páll Óskar rifjar upp viðtal sem Snorri tók við hann árið 2022

Páll Óskar rifjar upp viðtal sem Snorri tók við hann árið 2022
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Segja eitt stórt vanta í nýja kanónu sænskrar sögu og menningar

Segja eitt stórt vanta í nýja kanónu sænskrar sögu og menningar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Landlæknir bregst við fordómum gagnvart hinsegin fólki – Þunglyndi, kvíði og sjálfsvígshugsanir fylgi félagslegri útskúfun

Landlæknir bregst við fordómum gagnvart hinsegin fólki – Þunglyndi, kvíði og sjálfsvígshugsanir fylgi félagslegri útskúfun