„Gerir þessi ágæti umsækjandi um að verða Seðlabankastjóri sér ekki grein fyrir því að af 30 milljóna húsnæðisláni þarf íslenskur almenningur að greiða allt að 100 þúsundum meira í vaxtakostnað miðað við neytendur á Norðurlöndunum í hverjum mánuði!“
Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. Varaforseti ASÍ, í færslu á Facebook-síðu sinni. Þar vandar hann Gylfa Magnússyni, dósent við Háskóla Íslands og fyrrverandi viðskiptaráðherra ekki kveðjurnar. Tilefnið er viðtal við Gylfa sem í þættinum Þingvöllum á K100 í gærmorgun.
Í viðtalinu sagði Gylfi það misskilning að lækkun vaxta kæmi heimilum til góða. Þá sagði hann það galið að takmarka lánstíma verðtryggðra lána við 25 ár.
„Flest lán til heimilanna eru lán frá öðrum heimilum og þar fyrir utan eru heimilin að lána fyrirtækjum og hinu opinbera. Þannig að það er stórfurðulegt að horfa á vaxtalækkun sem tekjubót fyrir heimilin,“ sagði Gylfi í viðtalinu að því er fram kemur í frétt á vef mbl.is.
Vilhjálmur vandar Gylfa ekki kveðjurnar og skilur raunar ekki hvert hann er að fara.
„Hvað er eiginlega að hjá þessu ágæta fólki en Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands segir að það sé misskilningur að lækkun vaxta komi heimilunum til góða og galið að takmarka lánstíma verðtryggðra lána, Telur Gylfi misskilning fólginn í því að telja að vaxtalækkun færi heimilunum mikinn ávinning þar sem heimilin eru einnig eigendur vaxtaberandi eigna.“
Vilhjálmur segir í raun ótrúlegt að Gylfi, sem er formaður bankaráðs Seðlabankans og einn umsækjenda um embætti seðlabankastjóra, skuli halda því fram að „okurvextir sem heimilin þurfa að þola séu byggðir á misskilningi og að vaxtalækkun komi heimilunum ekki til góða því heimilin séu „eigendur“ vaxtaberandi eigna.“
„Hvað er maðurinn að eiginlega að tala um að það sé bara eðlilegt að íslensk heimili séu að greiða 3 til 3,5% hærri raunvexti en neytendur á Norðurlöndunum.
Það liggur einnig fyrir sérfræðiálit um að 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán séu baneitraður kokteill sem verði að banna, enda gera þessi lán ekkert annað en að hækka fyrstu 25 árin af samningstímanum! Nei það vill Gylfi Magnússon alls ekki því nauðsynlegt er að halda áfram að bjóða uppá baneitraða kokteilla sem byggjast uppá að sjúga allt fé frá varnarlausu lágtekjufólki.“
Vilhjálmur veltir fyrir sér hvort Gylfi sé að tala um að blóðmjólka þurfi húsnæðiskaupendur í hverjum mánuði til að verja lífeyriskerfið.
„Gerir þessi ágæti umsækjandi um að verða Seðlabankastjóri sér ekki grein fyrir því að af 30 milljóna húsnæðisláni þarf íslenskur almenningur að greiða allt að 100 þúsundum meira í vaxtakostnað miðað við neytendur á Norðurlöndunum í hverjum mánuði!“
Vilhjálmur segir að í raun vanti aðeins í þetta viðtal að Gylfi haldi því fram að Ísland verði Kúba norðursins ef tekið verður á okurvöxtum fjármálakerfisins og hagsmunir alþýðunnar og heimilanna verði teknir fram yfir hagsmuni fjármálaelítunnar.
„Ég tel að hérna blasi við hvernig hluti af fræðasamfélaginu og embættismannakerfinu er tilbúið að berjast af alefli gegn kerfisbreytingum þar sem hagsmunir heimilanna verði teknir framyfir hagsmuni fjármálakerfisins.“