fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Fréttir

Kjarasamningar undirritaðir: Markar tímamót fyrir láglaunafólk – Krónutöluhækkanir og auknar ráðstöfunartekjur

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. apríl 2019 22:52

Fjölmiðlafólk að störfum í Karphúsinu. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Efling og samflotsfélögin VR, LÍV, Framsýn, VLFA og VLFG hafa undirritað kjarasamning við Samtök atvinnulífsins með fyrirvara um aðkomu ríkisvaldsins. Einnig undirrituðu aðildarfélög Starfsgreinasambandsins sams konar samning. Í tilkynningu frá Eflingu kemur fram að samningurinn muni mynda hluta af víðtækri sátt um bætt kjör láglaunafólks þar sem aðilar vinnumarkaðarins, ríkisvaldið og Seðlabankinn leggja af mörkum.

Ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins boðuðu til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í kvöld, en þar var kynnturlífskjarasamningur aðila vinnumarkaðarins og aðgerðir stjórnvalda í tengslum við hann. 

„Þessi víðtæka samvinna stofnana samfélagsins um að bæta kjör láglaunafólks er beinn árangur af baráttu Eflingar og samflotsfélaga,“ segir í tilkynningu sem Efling sendi frá sér. Þá segir að samninganefnd Eflingar hafi veitt Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni, umboð á þriðjudagskvöld til að ljúka við kjarasamninginn sem undirritaður var í kvöld. 

„Leiða má líkum að því að enginn kjarasamningur á Íslandi hvorki fyrr né síðar hafi tryggt jafn vel að kjarabætur beinist sérstaklega að lágtekjufólki. Allar launahækkanir samningsins til félagsmanna samflotsfélaganna eru krónutöluhækkanir og við þær bætast sérstakar krónutöluhækkanir á taxta,“ segir í tilkynningunni.

„Efling er stolt af þátttöku sinni í breiðri samstöðu með VR og Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna um krónutöluhækkanir og sérstakar hækkanir á taxta. Þessi styrka samstaða mun í framhaldinu gefa tóninn fyrir launastefnu gagnvart öðrum hópum bæði á almennum og opinberum markaði. Efling er einnig stolt af að hafa tryggt að sá ábati verði ekki tekinn til baka í gegnum skattkerfið, líkt og gerðist á samningstíma síðasta kjarasamnings.“

Að því er segir í tilkynningu Eflingar munu hreinar launahækkanir til þeirra sem starfa á töxtum nema 90 þúsund krónum í fjórum hækkunum yfir samningstímann, sem er til 3 ára og átta mánaða. „Þessi hækkun er rúmlega fjórðungi lægri en krafa Eflingar og annarra SGS félaga um 125 þúsund króna hækkun á þremur árum. Lág hækkun árið 2019 dregur helst niður heildarhækkunina. Með þessu er tekið tillit til stöðu atvinnulífsins vegna gjaldþrota og uppsagna í ferðaþjónustu auk þess sem sköpuð eru skilyrði til vaxtalækkunar.“

Til viðbótar hefðbundnum nafnlaunahækkunum koma til ýmis atriði sem munu auka ráðstöfunartekjur og eru þannig ígildi launahækkana, að sögn Eflingar.

„Í samningnum er nýstárlegt ákvæði sem tryggir að hagvaxtaraukning skili sér til launafólks í formi krónutöluhækkana. Að því gefnu að hagvöxtur á mann aukist um tiltekið hlutfall munu koma til sjálfkrafa hækkanir til viðbótar hefðbundnum umsömdum launahækkunum. Líkt og aðrar krónutöluhækkanir í samningnum er þessi hagvaxtartengdi launaauki útfærður þannig að hann skilar sér betur til þeirra sem vinna á töxtum. Miðað við meðalhagvöxt síðustu 30 ára gæti slíkur ábati skilað 10-24 þúsund til viðbótar við heildarhækkun launa á samningstímanum.

Þá segir að ein af forsendum samningsins er að Seðlabanki Íslands lækki stýrivexti. „Samningsaðilar eru sammála um að samningurinn skapi aðstæður til þess. Lækkun vaxta mun hafa mikil áhrif á útgjöld skuldsettra heimila og einnig stuðla að lækkun leiguverðs. Í samningnum verða forsenduákvæði um uppsögn hans verði vaxtalækkanir ekki að raunveruleika.“

Þá kemur fram að samhliða undirritun samnings muni ríkisvaldið skuldbinda sig til að lækka skatta þannig að það skili sér í 10 þúsund króna aukningu ráðstöfunartekna á mánuði til handa tekjulægstu hópum í skrefum. Tryggt verði að hækkuð skattleysismörk haldi raungildi sínu út samningstímann. Hækkun skerðingarmarka barnabóta, til viðbótar við hækkun barnabóta sem þegar var kynnt í fjárlögum síðasta árs, mun einnig skila sér vel til tekjulágra, að sögn Eflingar.

„Aðgerðir ríkisins í húsnæðismálum koma til með að fela í sér aukið fjármagn til byggingar íbúðarhúsnæðis fyrir tekjulága og lagasetningu sem hamlar óhóflegum hækkunum húsaleigu.

Að auki mun ríkið skuldbinda sig til kerfisbreytinga varðandi lánakjör og fjármálakerfið, sérstaklega til skrefa til afnáms verðtryggingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Vilhjálmur hneykslaður: Sjáðu hvað árið í fimleikum kostar í Reykjanesbæ – „Hverjir hafa efni á þessu?“

Vilhjálmur hneykslaður: Sjáðu hvað árið í fimleikum kostar í Reykjanesbæ – „Hverjir hafa efni á þessu?“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sara vaknaði með rottu upp í rúminu í nótt – „Ég er í andlegu áfalli”

Sara vaknaði með rottu upp í rúminu í nótt – „Ég er í andlegu áfalli”
Fréttir
Í gær

Ræða endurkomu Jóns Ásgeirs sem risi á matvörumarkaðinum – „Hann teiknaði upp líkan“

Ræða endurkomu Jóns Ásgeirs sem risi á matvörumarkaðinum – „Hann teiknaði upp líkan“
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir aðgerðaleysi Ferðamálastofu vegna bílastæðavitleysunnar

Gagnrýnir aðgerðaleysi Ferðamálastofu vegna bílastæðavitleysunnar