fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Fréttir

Guðríður byrjaði 8 ára að vinna: „Hætti út af skrokknum. Það er ekki létt að vinna í þvottahúsi“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 3. apríl 2019 16:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég var að vinna hjá Eimi á þeim tíma sem klórþvegnar gallabuxur voru í tísku. Gallabuxurnar komu frá Hagkaup til okkar í klór og urðu við það mislitar. Þetta þótti ferlega flot, segir Guðríður Eygló Valgeirsdóttir, yfirumsjónarkona með eldhúsinu á Ásbyrgi í Hveragerði í frásögn sinni sem birtist á Facebook síðu átaksins „Fólkið í Eflingu“. Þar má einnig finna fjölmargar aðrar sögur fólksins í stéttafélaginu, fólks sem vinnur margvísleg störf í íslensku samfélagi en oft á tíðum fyrir lág laun.

Fæddist á Bíldudal

Guðríður fæddist á Bíldudal en flutti þriggja ára gömul til Reykjavíkur.

„Foreldrar mínir skildu og pabbi flutti út en við systkinin, ég og bróðir minn pökkuðum alltaf niður eftir skóla á laugardögum og fórum til pabba sem sinnti okkur um helgar og í fríum.“

Pabbi Guðríðrar var vélamaður á þungavélum og mamma  hennar sinnti margvíslegum störfum.

„Fyrst vann hún við skúringar, síðan á kaffistofunni í Togaraafgreiðslunni og síðast var hún í grænmetinu hjá Hagkaup. Ég byrjaði átta ára að passa börn og ég var tólf ára þegar ég byrjaði að skúra gólfin í Togaraafgreiðslunni. Þetta voru svona langir bekkir þarna, maður tók í annann endann og sporðrenndi honum upp til þess að komast að með kústinn.“ 

„Ég held að Harpan sé í dag á þessum bletti þar sem Togaraafgreiðslan var í sínum tíma. Þangað komu aðallega menn sem voru að vinna í kringum höfnina. Stundum komu rónar einsog við kölluðum útigangsmennina í þá daga, ég var nú hálfsmeyk við þá. “

Bónað upp úr mjólk og bónað með Mjöll

„Í eldhúsinu hjá Togaraafgreiðslunni vann fullorðin kona sem bónaði eldhúsgólfið upp úr mjólk. Hún skúraði fyrst og helti síðan mjólk niður og bónaði gólfið. Mér dettur nú ekki í hug sjálfri að prófa þetta en þetta virkaði hjá henni.“

„Mamma bónaði alltaf með Mjöll, sem leit út eins og bleikt kertavax. Hún var á fjórum fótum og bar þetta á með einni tusku og svo nuddaði hún með annarri þurri tusku og þá glansaði gólfið einsog spegill. En sleipt var þetta og maður var alltaf á hausnum, sérstaklega ef maður var á ullarsokkum.“

Pressaði stretsbuxur sem krakki

Guðríður fór að vinna hjá þvottahúsinu Eimi eftir barnaskóla. Þar lærði hún að pressa buxur og straja skyrtur.

„Ég lærði líka að brjóta saman lök og sængurver. Ég var hinsvegar farin að pressa mínar eigin stretsbuxur strax sem krakki. Það skyldi vera brot í buxunum áður en ég fór í skólann. Þetta voru svona buxur með bandi sem var smeygt undir skóinn.“

Þegar hún vann hjá Eimi voru klórþvegnar gallabuxur í tísku

„Gallabuxurnar komu frá Hagkaup til okkar í klór og urðu við það mislitar. Þetta þótti ferlega flott. Sniðið var einsog pils, þröngar niður lærið og víkkuðu svo út. Við þurftum að pressa þær á eftir og þá sá maður hvað buxurnar voru illa sniðnar, snúningur í saumnum. Þegar ég fór að versla mér sjálf svona buxur þá passaði ég að mitt eintak væri rétt sniðið. Mér sýnist þetta snið vera að koma aftur í tísku núna einsog samfestingarnir.“

Ætlaði að búa í Hveragerði í ár

Árið 1975 flutti Guðríður til Hveragerðis, en ætlaði aðeins að búa þar í ár.

„Ég hef verið hérna síðan og börnin mín fjögur ól ég upp hérna í Hveragerðisbæ. Maðurinn minn fékk vinnu í rútuveseninu. Hann var aldrei heima hjá sér, alltaf að keyra. Ég vann um tíma í Kjörís og ég var gangavörður í grunnskólanum en hérna hjá Ási hef ég verið í 24 ár. Ég byrjaði í böðun, að baða heimilismenn hjá dvalarheimilinu Ás og tók svo lyfjavaktina með.“

Hún færði svo síðan yfir í þvottahúsið hjá Ási og var þar í fjögur eða fimm ár.

„Hætti út af skrokknum. Það er ekki létt að vinna í þvottahúsi. Það er fjölbreytilegt en það þarf krafta til þess að hrista upp hálfblaut sængurver, maður er alltaf að vinna upp fyrir sig og ég fékk í axlirnar. Ef ég hefði verið yngri þá hefði þetta verið í lagi. Við þvoðum sængurverin á kvöldin og svo komum við morguninn eftir að þurrka en það var bara þurrkað til hálfs. Hálfblautt tauið er tekið úr vélinni og hrist svo það fari ekki í einn vöndul, endarnir eru klemmdir til þess að það fari jafnt í strauvélina. Við vorum líka með handklæðavél sem braut saman, þá leggur maður handklæðin á bandið og vélin sér um rest. Að auki þvoðum við og gengum frá fötunum af heimilisfólkinu.“

Hér er æðislegt að vinna

Núna er Guðríður komin í eldhúsið á Ásbyrgi.

„Hér er æðislegt að vinna. Ég mæti hálf átta og elda hafragrautinn og tek morgunmatinn saman fyrir heimilisfólkið. Þetta er líkamlega miklu léttari vinna en í þvottahúsinu. Við notum sjaldan stóra potta, það er aðallega þegar við sjóðum svið fyrir konudaginn sem ég þarf að lyfta þungum pottum. Við fáum sendan mat í hádeginu en undirbúum kvöldmatinn og reynum að vera búin að því klukkan tvö en þá fer ég heim.“

Klukkutíma að búa um rúmið sitt

Faðir Guðríðar var með MS-sjúkdóminn og bjó hjá henni í tuttugu ár.

„Hann var duglegur að bjarga sér, hann var svo þver, vildi gera allt sjálfur, þótt að hann hafi verið klukkutíma að búa um rúmið sitt þá gerði hann það samt.“

Guðríður og eiginmaður hennar hafa verið gift í 45 ár og eiga fjögur börn.

„Við erum bæði spordrekar og tölum og gerum mikið saman sem ég held að sé lykillinn að farsælu hjónabandi. Við eigum húsbíl og höfum stundað Kanaríeyjar í meir en tuttugu ár á veturnar. Á sumrin tökum við húsbíllinn og keyrum út á land.“

Fjölskyldan sameinast á Kanarí

Börn Guðríðar dreifast um Ísland, Akureyri, Selfoss, Hveragerði og Reykjavík.

„Ég náði þeim öllum saman í Kanaríferð í vetur. Krakkarnir vildu vita hvað við værum alltaf að gera þarna. Allir komu, börnin, barnabörnin og tvö langömmubörn, en ég byrjaði svo ung að eiga börn.“

„Á Kanaríeyjum erum við að sleikja sólina, labba um, og fá okkur bjór. Láta hugann reika. Þurfa ekki að elda mat í hálfan mánuð. Það er gott að sleppa við það. Það eru svo margir íslendingar þarna á sama tíma og við. Maður er farin að kannast við mörg andlit þarna í Íslendinganýlendunni á Kanaríeyjum.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vilhjálmur hneykslaður: Sjáðu hvað árið í fimleikum kostar í Reykjanesbæ – „Hverjir hafa efni á þessu?“

Vilhjálmur hneykslaður: Sjáðu hvað árið í fimleikum kostar í Reykjanesbæ – „Hverjir hafa efni á þessu?“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sara vaknaði með rottu upp í rúminu í nótt – „Ég er í andlegu áfalli”

Sara vaknaði með rottu upp í rúminu í nótt – „Ég er í andlegu áfalli”
Fréttir
Í gær

Ræða endurkomu Jóns Ásgeirs sem risi á matvörumarkaðinum – „Hann teiknaði upp líkan“

Ræða endurkomu Jóns Ásgeirs sem risi á matvörumarkaðinum – „Hann teiknaði upp líkan“
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir aðgerðaleysi Ferðamálastofu vegna bílastæðavitleysunnar

Gagnrýnir aðgerðaleysi Ferðamálastofu vegna bílastæðavitleysunnar